Ég á í sálarstríði í augnablikinu. Ég get ekki ákveðið hvort að ég eigi að fara í sandölum í vinnuna. (Berfætt "nóta bene" hér er það alveg svakalegt faux pas að vera í sokkum og sandölum. Ekki vill maður láta stimpla sig sem skandinavískan túrista ha!).
Það er spáð átján stiga hita hér í dag (jamm, á kvarðanum hans Selsíus). Það er hins vegar bara níu stiga hiti úti í augnablikinu, og því ekki alveg sandalafært!