Sondre Lerche bjargar deginum í dag. Ég er í massa tölvuvinnslu á smásjármyndum, ekki það skemmtilegasta í heimi. En hann Sondre kallinn heldur mér í góðu skapi.
Ég er með svokallaðan "4th year grad student blues" þessa dagana. Ég nenni ekki verkefninu mínu og er allskostar ómótíveruð. Mæti seint og fer snemma í gymmið. Má reyndar hafa mig alla við að vinna þegar ég er þó í vinnunni (nema þegar ég er að blogga). Það er svona þegar framgangur verkefnisins byggist á vilja nagdýra til mökunar. Sérstaklega erfitt þegar þessar elskur eru ekkert í neinu svakalegu stuði. Ég er farinn að beita á þær allskonar kúnstum. Karlmúsapiss á víst að virka sem hinn besti afródísíak á kvenmýs. Það kemur í ljós eftir nokkra daga hvort það sé satt. Svo virkar oft vel að setja reynda kvenmús í búrið hjá kvenmús sem er alls óreynd og er ekkert að þýðast við karlinn sinn. Svona til að kenna henni handbrögðin. Það kallast "harem-breeding" upp á vísindaensku. Þ.e. þegar það eru fleiri en ein kvenmús með einum karli í búri. Það má hafa þrjár kvensur með einum karli. Úha.
Hefur einhver séð mýs í sleik? Það er frekar fyndið.
Welcome to my life.