Helgin sem að baki er var alveg frábær. Við drifum okkur til Íþöku eins og áður sagði, að heimsækja Hawai-Dísuna. Þar var mikið sungið og trallað (ehm.. ég meina drukkið og étið), og skíðað og spjallað. Það er langt síðan ég hef drukkið jafnmikið af jafngóðu kaffi og um helgina :)
Það var svo gaman á skíðum að ég er búin að ákveða að kaupa mér skíðaskó um helgina, fyrir peningana sem ég fékk í afmælisgjöf, sem ég er víst ekki enn búin að eyða. Þeir áttu að fara í bakpoka, en það bíður næsta árs, þar sem það eru svo góðar skíðaútsölur hér í borginni um þessar mundir.
Við ætlum á Hunter um næstu helgi, og þar ætla ég að sigrast á löngu bláu brekkunni sem ég datt í um daginn. Ég skal!
Við stefnum ennfremur á að keppa í fimm kílómetra hlaupi um helgina. Það er úti á Randall's Island, klukkan átta um morguninn. Það er svo mikil snilld að það séu alltaf einhverjar svona hlaupakeppnir í gangi hérna, þetta er bara eins og að fara í bíó! Manni dettur allt í einu í hug að það gæti nú verið gaman að skella sér í smá kapphlaup og ákveður að kíkja á netið á hlaupadagskránna og getur þar valið úr mismunandi hlaupum. Alger gargandi schnilld!
Sjiitttt... ég var að fatta að skilafrestur á skattframtölum heima á Íslandi er á morgun, 23. mars. Úff, hvað gerir maður ef maður veit ekki einu sinni veflykilinn sinn, þannig að maður getur ekki einu sinni loggað sig inn?
Ef það er eitthvað sem mér er meinilla við, þá er það að skila svona hlutum of seint. Það fer í mínar fínustu, það ætti að vera svo mikill óþarfi. Mér sýnist að morgunndagurinn fari í skattframtöl fjölskyldunnar.