Það er svona um það bil það mest áhugaverða sem ég hef að segja þessa dagana. Ég er á fullu að undirbúa mig fyrir doktorsnefndarfundinn sem ég held á fimmtudaginn, og það hefur tekið á undanfarna daga. Ég er reyndar með alveg hrúgu af gögnum til að sýna, en ég er með ákveðna tilgátu um verkefnið mitt í huga sem ég er á fullu að reyna að prófa (prófar maður ekki tilgátur á íslensku?). Það væri svo gaman að geta verið með smá rúsínu í pylsuendanum fyrir liðið á þriðjudaginn.
Nefndarmeðlimirnir mínir eru hárnördar Kólumbíuháskóla, þau Andrey Panteleyev og Angela Christiano. Þau eru algerir snillbertar í öllu því sem tengis sameindalíffræði hárs og húðar, og ég hlakka frekar mikið til að sýna þeim gögnin mín og spekúlera í framhaldinu með þeim.
En fram að þeim tíma verður bara blóð sviti og tár í gangi, og sennilega eftir það líka, því að mig vantar bara herslumuninn upp á að geta birt rannsóknina í einhverju bitastæðu vísindatímariti.