Fimmtudagur, 17 febrúar, 2005
Heiladauði

Ohh... ég er sko þokkalega búin á því í dag. Ég hélt labbfund í morgun og hann tók tvo og hálfan klukkutíma! Tvo og hálfan! Ég hélt að raddböndin á mér myndu detta úr mér eða eitthvað. Ég fékk alveg endalaust innpútt í verkefnið mitt og nú er ég eiginlega bara algerlega lömuð í hausnum, og ætla mér að halda áfram að vera heiladauð frameftir degi.

Á stefnuskránni akkúrat núna er að panta eitt mótefni, panta eitt par af prímerum og fara svo heim og út að hlaupa. Eftir það elda ég kannski smá kvöldmat og svo, kannski, ef ég er í stuði hugsa ég um hvað ég eigi að gera næst á vísindasviðinu.....

Posted by erna at 03:51 EH
Miðvikudagur, 9 febrúar, 2005
Curry in a Hurry

Þau undur og stórmerki gerðust í gær, að ég hafði loksins tíma til þess að elda kvöldmat. Við erum búin að vera svo bissí undanfarnar helgar, (en ég elda oftast um helgar), að það hefur ekki unnist nokkur tími til eldamennsku.

Ég eldaði linsubaunakarrí, eiginlega bullaði upp úr mér uppskrift, notaði sinnepsfræ, cumminfræ og fenugreek fræ sem ég ristaði fyrst í olíu, bætti svo kanil, cummindufti, kóríanderdufti og turmeric út í blönduna og ristaði meira. Svo skellti ég lauk á pönnuna og mýkti og þar á eftir sveppum, og gulrótum og brokkólí og svo vatni og rauðum linsubaunum og lét krauma þar til linsurnar voru soðnar. Í lokin fór svo slatti af salti og svörtum pipar í pottinn og þar með var komið ansi gott karrý.

Ég er nær alveg hætt að nota tilbúnar karrýblöndur, ég er búin að venja mig á að nota bara grunnkryddin í mismunandi hlutföllum og finnst það mikið skemmtilegara. Svo keypti ég uppskriftabók um helgina með indverskum uppskriftum, en þar er fullt af masalablöndum sem ég hlakka til að prófa. Kannski ég hanni svo bara mitt eigið Ernu-Masala. Hvurnin væri það nú?

Posted by erna at 04:09 EH
Sunnudagur, 6 febrúar, 2005
Kapphlaup

Við hjónin vorum árrisul í morgun, svona alla vegana miðað við að það er sunnudagur. Leiðin lá út í Centrar Park þar sem við kepptum í fimm kílómetra hlaupi hjá New York Road Runners.

Það var frábært hlaupaveður í morgun, bjart og fimm stiga hiti, en það virkaði hlýrra vegna fólksfjöldans. Það er alltaf einhvað svo gaman að taka þátt í svona viðburðum, það er svo jákvæður andi í gangi og allir mættir snemma að morgni til þess að gera sitt besta.

Það er alveg stórsniðugt að maður fær svona plasthylki sem inniheldur örflögu til þess að setja á skóinn sinn, og þannig er haldið utan um tímann manns. Það er sérstaklega gott af því að maður byrjar yfirleitt ekkert að hlaupa á rástíma, af því að það er svo mikil þvaga af fólki fyrir framann mann.

Ég var svo stolt af Merði, hann hljóp þetta á um tuttugu og sjö mínútum (nettó tími, þ.e. frá því að hann hljóp fyrst um rásmarkið, þangað til hann kom í mark). Hann er bara búinn að vera að hlaupa í mánuð og er strax farinn að bæta sig í hvert skipti, um alveg slatta.

Ég hafði ekki miklar væntningar fyrir sjálfa mig, ég er búin að hlaupa að meðaltali fimm kílómetra á mánuði frá því í ágúst og því ekki í mínu mesta hlaupaformi. Ég marði þetta þó á rétt rúmlega þrjátíu og einni mínútu og er bara sátt.

Fyrir mína parta þá eru svona keppnir alveg ótrúlegur hvati til að koma sér í form. Það skemmir heldur ekki fyrir að niðurstöðurnar birtast opinberlega og svona. Við stefnum á að keppa í svona keppni einu sinni í mánuði á þessu ári, og stefnum við næst á Snowflake fjögurra mílu hlaupið eftir tvær vikur.

Posted by erna at 05:35 EH
Fimmtudagur, 3 febrúar, 2005
Prókrastinator dauðans

Ég á að halda hálftíma fyrirlestur fyrir deildina mína á morgun. Sem væri svo sem ekki í frásögur færandi, nema að núna er klukkan orðin hálf fjögur og ég er ekki byrjuð að semja fyrirlesturinn og ég nenni því engan veginn. Ég ætlaði að gera það í morgun, en allt í einu lá mér eitthvað svo voðalega mikið á að setja upp Real Time PCR og semi-Q PCR og égveitekki hvað. Og svo þurfti að analýsera gögnin af PCR keyrslunum og borða hádegismat náttúrulega. Að ekki sé talað um að vinna sýni fyrir paraffín blokkir og að kíkja aðeins í smásjána. Bleh. Og nú hef ég loksins enga afsökun og þarf að drífa í þessu. Og þá er einmitt gott að blogga smá.

Posted by erna at 03:34 EH