Miðvikudagur, 9 febrúar, 2005
Curry in a Hurry

Þau undur og stórmerki gerðust í gær, að ég hafði loksins tíma til þess að elda kvöldmat. Við erum búin að vera svo bissí undanfarnar helgar, (en ég elda oftast um helgar), að það hefur ekki unnist nokkur tími til eldamennsku.

Ég eldaði linsubaunakarrí, eiginlega bullaði upp úr mér uppskrift, notaði sinnepsfræ, cumminfræ og fenugreek fræ sem ég ristaði fyrst í olíu, bætti svo kanil, cummindufti, kóríanderdufti og turmeric út í blönduna og ristaði meira. Svo skellti ég lauk á pönnuna og mýkti og þar á eftir sveppum, og gulrótum og brokkólí og svo vatni og rauðum linsubaunum og lét krauma þar til linsurnar voru soðnar. Í lokin fór svo slatti af salti og svörtum pipar í pottinn og þar með var komið ansi gott karrý.

Ég er nær alveg hætt að nota tilbúnar karrýblöndur, ég er búin að venja mig á að nota bara grunnkryddin í mismunandi hlutföllum og finnst það mikið skemmtilegara. Svo keypti ég uppskriftabók um helgina með indverskum uppskriftum, en þar er fullt af masalablöndum sem ég hlakka til að prófa. Kannski ég hanni svo bara mitt eigið Ernu-Masala. Hvurnin væri það nú?

Posted by erna at 04:09 EH