Sunnudagur, 6 febrúar, 2005
Kapphlaup

Við hjónin vorum árrisul í morgun, svona alla vegana miðað við að það er sunnudagur. Leiðin lá út í Centrar Park þar sem við kepptum í fimm kílómetra hlaupi hjá New York Road Runners.

Það var frábært hlaupaveður í morgun, bjart og fimm stiga hiti, en það virkaði hlýrra vegna fólksfjöldans. Það er alltaf einhvað svo gaman að taka þátt í svona viðburðum, það er svo jákvæður andi í gangi og allir mættir snemma að morgni til þess að gera sitt besta.

Það er alveg stórsniðugt að maður fær svona plasthylki sem inniheldur örflögu til þess að setja á skóinn sinn, og þannig er haldið utan um tímann manns. Það er sérstaklega gott af því að maður byrjar yfirleitt ekkert að hlaupa á rástíma, af því að það er svo mikil þvaga af fólki fyrir framann mann.

Ég var svo stolt af Merði, hann hljóp þetta á um tuttugu og sjö mínútum (nettó tími, þ.e. frá því að hann hljóp fyrst um rásmarkið, þangað til hann kom í mark). Hann er bara búinn að vera að hlaupa í mánuð og er strax farinn að bæta sig í hvert skipti, um alveg slatta.

Ég hafði ekki miklar væntningar fyrir sjálfa mig, ég er búin að hlaupa að meðaltali fimm kílómetra á mánuði frá því í ágúst og því ekki í mínu mesta hlaupaformi. Ég marði þetta þó á rétt rúmlega þrjátíu og einni mínútu og er bara sátt.

Fyrir mína parta þá eru svona keppnir alveg ótrúlegur hvati til að koma sér í form. Það skemmir heldur ekki fyrir að niðurstöðurnar birtast opinberlega og svona. Við stefnum á að keppa í svona keppni einu sinni í mánuði á þessu ári, og stefnum við næst á Snowflake fjögurra mílu hlaupið eftir tvær vikur.

Posted by erna at 05:35 EH