Fimmtudagur, 27 janúar, 2005
Nennissiggi!

Dagurinn í dag er svona tölvudagur. Ekkert mikið spennó í gangi í tilraunabissnissnum, bara eitt western og eitt qPCR. Það er vegna þess að ég er að búa til fyrirlestur sem ég held fyrir deildina mína þarnæsta föstudag, um leið og ég fer yfir öll gögnin mín og geri samantekt, því við erum víst alveg að fara að skrifa grein. Einhvern tíman á þessu vormisseri alla vegana. Þannig að samantektin mikla sem fram fer í dag mun vonandi leiða í ljós hvaða holur eru í gögnunum mínum. Og svo get ég stoppað upp í holurnar á næstu vikum um leið og ég undirbý mig fyrir "thesis-committe-meeting", (sem sennilega útlegst bara doktorsnefndarfundur á íslensku).

Gallinn er bara að mér leiðast tölvudagar. Mér finnst OK að verja klukkutíma eða tveimur hér og þar í að vinna úr hinum og þessum gögnum, en mér finnst ekki gaman að sitja of lengi fyrir framan skjáinn. Og þess vegna er ég líka nú þegar búin að kíkja sjöhundruð sinnum í tölvupósthólfið mitt, og náttúrulega blogga og skoða öll blogg í heiminum... og mér lángar í nammi... Gvöð hvað ég væri barasta til í þrist eða hraun núna. Af hverju er ekki til neitt alminnilegt nammi á amríku?

Posted by erna at 01:27 EH