Það var víst blindbylur á svæðinu í nótt og allt ófært og því varð ekkert úr skíðaferð okkar Marðar. Hins vegar var ótrúlega gott veður í borginni í dag, sól og kalt og þrjátíu sentímetra jafnfallinn snjór þakti jörðina.
Við skelltum okkur því barasta á gönguskíði. Við drifum okkur í kuldagallann upp úr hádegi og spenntum á okkur skíðin og brunuðum sem leið lá suður eftir Riverside Park, niður að Hudson og alla leið niður á sjötugasta og níunda stræti. Þar tókum við af okkur skíðin og töltum sem leið lá út í Central Park, þar sem skíðin rötuðu aftur á tær okkar og við þeystust um snjóbreiðuna innan um aðra borgarbúa.
Það var ótrúleg stemning í görðunum í dag, allir sem vetlingi gátu valdið voru mættir á svæðið með snjóþotur, eða jafnvel bara plastpoka eða pappaspjald, til þess að renna sér salíbunu. Svo var líka töluvert um gönguskíðafólk í essinu sínu. Það er ekki oft sem það snjóar svona duglega hér um slóðir.
Eftir um tveggja og hálfs tíma þramm um garða borgarinnar komum við svo aftur heim og ég setti rúsínuna í pylsuendann með því að fá mér heitt kakó og ostabrauð. Er til eitthvað betra, ég bara spyr?