Ég er svo spennt, það er spáð tuttugu tommu snjófalli í borginni í dag. Í augnablikinu er samt ellefu stiga frost, þannig að ég sé það ekki alveg gerast.
Það er áhugavert að horfa út um gluggan á labbinu á svona köldum morgnum, því að það stíga gufubólstrar upp af svo mörgum háhýsum í borginni, þannig að það standa hvítir bólstrar upp í himinn yfir allri Manhattan.
Ég mætti í vinnuna klukkan hálfníu og gaf frumunum mínum kalsíum, klukkan eitt fá þær aftur kalsíum og svo er fjögurra tíma bið. Ég ætla að hitta Mörð niðri í bæ, en við ætlum í útivistarbúð að kaupa okkur vetlinga og ég ætla kannski að kaupa mér nýjan bakpoka fyrir peninginn sem ég fékk í afmælisgjöf.