Fimmtudagur, 20 janúar, 2005
Nýsleginn túskildingur?

Heilinn í mér er steiktur núna, þokkalega! Ég svaf illa í nótt, en var samt mætt klukkan sjö á labbið. Ég er svo stolt af sjálfri mér að hafa vaknað milli klukkan sex og sjö alla vikuna. Ástæðan fyrir því að ég fór á fætur klukkan sex í morgun var þó önnur en aðra daga.

Ég var nefnilega svo sniðug í gær, þegar ég var að klæða mig í spriklfötin í gymminu, að stinga upp í mig MP3 spilaranum mínum, þar sem aðrir útlimir voru uppteknir af púlsmæli, vatnsflösku og handklæði. Það fór ekki betur en svo, þegar ég tók spilarann út úr kjaftinum á mér, að fjórðungur úr annarri framtönninni á mér fylgdi með. Þetta var sko ekki sárt, því tönnin er rótfyllt, en ég hef oft verið sætari en einmitt í gærkvöld í gymminu. Þetta var eiginlega kjánalegt, því að ég stóð sjálfa mig að því að reyna að brosa ekki, sem var pínu erfitt, svona þegar fólk sagði hæ og var að tala við mig. Mér brá líka svo mikið við tannbrotið að mér féll allur ketill í eld, og ætlaði næstumþví bara heim aftur, en lét mig hafa það að púla almennilega, fyrst ég var nú mætt á svæðið.

Í morgun vaknaði ég svo klukkan sex og lét mitt fyrsta verk vera að hringja í hann Gunna Tann og spurja hann ráða. Það róaði mig nú að hann sagðist halda að bráðabirgðaviðgerð hlyti að duga fram á sumarið.

Ég var því mætt á labbið skömmu seinna og kom eins miklu í verk og ég gat fyrir klukkan tíu og fór svo á tannlæknastofuna á Morningside kampusnum, en ég fékk svokallaðan neyðartíma þar strax. Daman sem gerði við tönnina í mér var afar vandvirk og það skemmdi ekki fyrir þegar ég fattaði að sjúkratryggingin mín nær yfir neyðartilvik í tannlækningum (ekki venjulegt tannviðhald samt) svo að ég þurfti bara að borga $20 fyrir viðgerðina. (Jámm, það gera tólfhundruð íslenskar krónur. Sirka nóg fyrir einum martini á barnum ha!)

Og nú lít ég út eins og nýsleginn túskildingur, eða þannig, því ég er heldur framlág eftir svefnleysi næturinnar. En hvað er það svosem á milli vina?

Posted by erna at 05:16 EH