Mánudagur, 17 janúar, 2005
29B

Jámm, fjórðaársblúsinn stóð ekki lengi yfir, það er allt komið aftur á gersamlega milljón hjá mér aftur í dag. Nú er stund á milli stríða, en ég er búin að vera á labbinu frá því klukkan korter í átta. Ég vaknaði meira að segja klukkan hálfsjö og mér til mikillar ánægju fékk ég snjókomu í afmælisgjöf. Þannig að núna er sautjánda janúarfílíngurinn í algleymi. Snjór á jörð og glaðasólskin og bjart. Í takt við snjókomuna kom Mörður mér á óvart í morgun og gaf mér vetrarsvefnpoka í afmælisgjöf. Hann á að duga alveg niður í -25F. Og ég er ekkert smá hamingjusöm, þetta var akkúrat það sem mig langaði í!

Það ráku allir upp stór augu á labbinu yfir því að ég væri komin svona snemma og að ég væri svo þögul, en ég var að einbeita mér sem mest ég mátti að því sem ég var að gera, því að ég ætla að fara í spinning klukkan korter yfir sex. Svei mér þá ef ég legg það ekki bara í vana minn að mæta svona snemma.

Ég keypti mér líka hjólaskó í gær, eða réttara sagt skilaði þeim gömlu, af því að þeir meiddu mig svo mikið. Ég fékk mér í staðin barasta alvöru hjólaskó með SPD smellum und alles. Nú mega spinningfélagarnir passa sig.. hahahaha...

En nú þarf ég að halda áfram, er að klára RNA einangrun og að búa til cDNA úr því, og því næst ætla ég að venja mýs af spena, skoða PCRið sem ég gerði í morgun og svo ætla ég að setja upp nýtt PCR..... Ýkt gaman =)

Posted by erna at 03:16 EH