Mánudagur, 10 janúar, 2005
Google Schnilld

Vil bara endilega benda þeim vísindamönnum og öðru menntafólki sem les þetta blogg á snilldina sem Google-Scholar er. Þetta er sérhæfð leitarvél sem leitar í vísindatextum og raðar þeim eftir því hversu mikið er vitnað í þá. Efst kemur textinn sem mest er vitnað í og svo framvegis. Og fjöldi tilvitnana kemur fram í textanum sem kemur upp á Google. Ég er nú þegar búin að nota þetta slatta og er bara búin að vita af þessu í nokkra daga.

ps. Ég er búin að opna aftur fyrir kommentakerfið, frá og með þessari færslu.

Posted by erna at 02:01 EH