Sunnudagur, 9 janúar, 2005
Sunnudagsafslappelsi

Ég sit hér og sötra kaffi fyrir framan tölvuna og ber saman stutt yfirlit yfir niðurstöðurnar mínar. Við erum nefnilega að fara að sækja um styrk til þess að fjármagna hluta af rannsókninni minni. Það er bara ansi kósí stemning í gangi, ljúf tónlist í spilaranum og sólin skín inn um gluggann. Mörður dvelur þessa stundina niðri í þvottahúsi með bók í hönd, en það var svo mikil traffík þar niðri að hann ákvað að bíða þar og sæta lagi að koma þvottinum okkar í vélarnar.

Við erum búin að ákveða að fresta Bostonferð um eina viku, þar sem við uppgötvuðum að næsta helgi er löng helgi hjá sumum af því að Martin Luther King day er á mánudeginum. Þess vegna verður örugglega mikil traffík og miklar líkur á því að við munum sitja í föst í umferðinni. Það hentar líka vel upp á tilranirnar sem ég er að gera.

Posted by erna at 02:10 EH