Föstudagur, 7 janúar, 2005
Um aukningu aldurs, Boston og fótbolta

Jammedíjæja. Um hvað á maður að blogga þegar lífið bara gengur sinn ljómandi vanagang? Kannski bara um það sem framundan er? Til dæmis að eftir rúmlega viku verð ég 29b ára gömul. Í raunheimi þýðir það að ég sé að fara að hefja annað ár mitt á fertugsaldrinum. Og er enn í skóla. Fyndið. Ég fæ þó að minnsta kosti borgað fyrir að vera í skóla og þarf ekki að mæta í neina tíma, þannig að það gæti verið verra!

Í tilefni þessarar aldursaukningar ætlum við Mörður að skella okkur til Boston í helgarferð um næstu helgi. Ekki slæmt. Við ætlum að taka svokallaða kínabæjarrútu. Þetta mun vera um fjögurra tíma rútuferð á fimmtán dollara hvora leið. Ódýrari gerast helgarferðirnar varla!

Mörður er líka í skýjunum þessa dagana af því að sem vinnandi maður hefur hann nú efni á að vera áskrfiandi að sjónvarpsstöðvum sem sýna enska boltann. Það er náttúrulega alger hamingja.

Posted by erna at 12:28 EH