Það var ráðist á bloggið okkar yfir jólin af kommentaróbot, sem kommentaði einhverju rasisma-trúarofstækis-andsamkynhneigðum áróðri undir yfirskini ókeypis fjárhættuspila.
Ég sé mig því tilneydda til þess að loka á öll komment í smá tíma. Það er búið að taka mig allt kvöldið að reyna að leysa úr þessu rugli og ég bara má ekki við fleiri svona kvöldum. Aumingjar og vandalistar!
Haldið þið ekki að ég hafi bara ákveðið að halda upp á jólin með því að vera lasin. Frekar fúlt. Ég er búin að vera að drepast í lungunum í tvo daga, og paranoid læknaneminn sem ég vinn með var orðin viss um að ég væri með lungnabólguvírus. Það reyndist nú ekki rétt, en mér var fyrirskipuð hvíld og gufuinnöndun. Sem er ótrúlega auðvelt svona rétt fyrir jólin eða þannig. Ég fer að minnsta kosti ekki í vinnuna, en ég held að jólaundirbúningurinn gerist ekki að sjálfu sér.
Haldið þið ekki bara að í dag sé fyrsti vetrardagur í Ameríku. Það hefði verið meira viðeigandi að hafa fyrsta vetrardag í gær, því það snöggkólnaði og það var ellefu stiga frost, átján gráður með vindkælingu (brrrrr.. það næddi um mann raki vindurinn í gær). Það er ekki lengra síðan tvær vikur að það var næstum fimmtán stiga hiti hér.
Ég afrekaði það að stíga á eina hálkublettinn í borginni í morgun og detta og rífa gallabuxurnar mínar og fá sár á hnéð. Þannig að nú líður mér eins og ég sé fimm ára og þarf að þola háðsglósur eins og: "And you call yourself Icelandic".
Jæja, loksins er að koma vetur hér í borginni. Hitinn fór í fyrsta skipti niður fyrir frostmark í gær og hann er þar enn í dag. Samt er ég ekki komin í jólaskap fyrir fimm aura hvað þó meira. Það var meira að segja jólaveisla heima hjá prófessornum mínum í gær og við opnuðum "secret santa" gjafir, und alles, það var hamborgarahryggslykt í íbúðinni hennar, og ekki komst ég í jólaskap. Það er líka of bjart og sólríkt úti til að það geti kallast jólalegt.
Kannski reddast þetta alltsaman í kvöld þegar við pökkum jólagjöfunum inn. Við erum algerlega á síðustu stundu náttúrulega, og vonandi komast gjafirnar á leiðarenda fyrir jól þó þær fari ekki í póst fyrr en á morgun.
Ég ætti kannski að skella Pottþétt Jól diskinum í spilarann og athuga hvort þetta reddist ekki...
Annars sit ég hérna bara á labbinu og analýsera gögnin mín og hlusta á Pixies á meðan, svona til að rifja upp stemninguna sem var í Hammerstein Ballroom á Sunnudaginn. Eyjó hringdi nefnilega í okkur á sunnudaginn og sagðist eiga auka miða. Mörður þurfti að klára ritgerðina sína þannig að ég bara skellti mér með þeim og sá ekki eftir því. Brjálað trukk.
Vá, ég trúi því ekki að ég sé búin að setja upp heila tilraun í morgun, án þess að hafa drukkið svosem eins og einn kaffidropa, og ég klúðraði engu!
Á meðan real time PCRið mallar í græjunni, ætla ég niður í bæ að kaupa gjafir fyrir labbfélagana. Eina "secret santa" gjöf og svo sameiginlega gjöf allra á labbinu til Miriam, en hún er að hætta. Svo er stefnt í spinning og kannski í Fairway í matarinnkaup... Nóg að gera sumsé!
Bleh, sagði konan og meinti það. Ég hangsa eiginlega bara hérna í vinnuni og prókrastínera akkúrat núna. Nenni engan veginn að gera það sem ég ætti að vera að gera. Nenni engu ef ég á að segja satt. Sérstaklega ekki að fara í spinning eða fara heim að elda. Svona fer áfengisdrykkja með mann, eða eins og Mörður sagði þegar við komum heim af barnum í gærkvöld: Öl er böl. Það hafið þið það!
Stórfínn dagur í dag. Fór á doktorsvörn í morgun hjá Sollu vinkonu. Frábær doktorsvörn náttúrulega og nú veit ég allt um metabólisma.. eða meira en í gær að minnsta kosti. Fór svo í veisluna hennar upp úr hádegi og svo er ég að fara út að borða og á barin til að hjálpa henni að fagna meira. Alltaf gaman þegar einhver klárar sko!
Þessi helgi var alveg ótrúlega næshhh.... Ég ákvað á laugardaginn að sitja bara heima og lesa og leiða hjá mér skítinn og drulluna heima. Íbúðin þrífur sig náttúrulega ekki sjálfkrafa, en ég ákvað að láta það bíða fram til næstu helgi og bara sat og las skáldsögu frá því klukkan níu um morguninn, fram til klukkan fimm, en þá fór ég í vinnuna og gerð það allra nauðsynlegasta í nokkra tíma og fór aftur heim og kláraði bókina sem ég var að lesa. Ég eldaði ekki einu sinni hvað þá meira, þvílíkt kæruleysi.
Í gær fór ég svo í bæinn og keypti nokkrar jólagjafir, fór út að hlaupa, vann smá og kom heim í þetta líka frábæra kjúklingakarrí sem Mörður eldaði (ég er einmitt núna að sporðrenna aföngunum, með hýðishrísgrjónum og grænum baunum). Við drifum okkur svo í bío, á rússnesku myndina Þú, ég elska. Kannski ekki besta mynd sem við höfum séð, en mér fannst alveg gaman að henni.
Og nú er ný vinnuvika að byrja á fullum hraða, best að koma sér að verki.
ps. Ég er með harðsperrur DAUÐANS eftir bara 7km skokk í gær. Ég er greinilega búin að vera of mikið í spinning og hlaupa of lítið undanfarið....
Svona til þess að vera í takt við dómsdagspælingar Einars, þá langar mig til að benda á grein sem birtist í Science í síðustu viku, þar sem fjallað er um möguleg áhrif sem gos í Lakagígum gætu valdið. Móðuharðindin upp á nýtt sumsé, um allan heim.. eða að minnsta kosti í Evrópu. Mér fannst merkilegast að fornleifafræðingar grófu upp beinagrindur fólks sem lést í móðuharðindunum og á beinagrindunum fundust beinhnúðar sem taldir eru afleiðingar af flúoríðeitrun. Þetta voru náttúrulega miklar náttúruhamfarir og rosalegt að hugsa til þess að þetta gerist líklega aftur. En ekki á þessari öld miðað við útreikninga jarðvísindamanna. Fær mig samt til þess að hugsa um hvað við ráðum litlu þegar náttúran er annars vegar. Allt er í heiminum hverfult.
Það er líka alltaf gaman að sjá svona umfjöllun þar sem spjallað er við íslenska vísindamenn. Ísland rúlar.
Það getur hins vegar verið að þessi grein í Science sé ekki aðgengileg nema maður eigi áskrift.