Þriðjudagur, 30 nóvember, 2004
Allt í klessu og einum hrærigraut

Það ætti að setja mig á hæli. Eða eitthvað. Ég fylltist svo miklu stórmennskubrjálæði eftir velgengi helgarinnar að ég planaði allt of mikið fyrir daginn í dag. Fattaði ekki að faktora inn fólk sem þarf að láta hjálpa sér við minnstu ákvarðanir. Og ég endaði á því að sleppa helmingnum af því sem ég ætlaði að gera og klúðra rest. Meira að segja tilrauninni sem ég svaf ekki yfir...

En ojæja. Ég veit að minnsta kosti að mótefnin virka og að það borgar sig að framkalla í þrjár mínútur frekar en tvær. Þvílík speki.

Posted by erna at 09:03 EH