Það má með sanni segja að það sé nostalgía í gangi hér á labbinu núna. Við Luisa, erum að spila Standing on the Beach með The Cure, og erum alveg að farast úr endurminningum frá táningsárunum. Í anda þakkargjörðarhátíðar er ég þakklát fyrir góða vinnufélaga og góða tónlist.
Ég er líka þakklát fyrir góðan laugardag. Ég var búin að vinna af mér daginn, þannig að ég þyrfti ekki að mæta í dag, þess vegna var þetta stress í mig að rífa mig upp á fimmtudaginn og mæta ein á labbið og svona. En svo breyttust plönin með stuttum fyrirvara og ég gat ekki byrjað nýjar tilraunir í gær, af því að fólkið sem ég þurfti að fá mótefni og tilraunaskilyrði hjá, var allt heima hjá sér. Ég dreif mig því bara á fætur í morgun og fór út í Fairway að versla fyrir vikuna og skellti mér svo í klippingu og plokkaði á mér augabrýrnar og svona. Þannig að nú er ég mega pæja og algerlega til í tjúttið, því það var verið að bjóða mér í partý í kvöld.
Og núna sit ég á labbinu og bíð eftir að sýnin mín afvatnist og les spennandi vísindagreinar á meða. Það er allt að gerast í verkefninu mínu þessa stundina, þess vegna er svona brjálað að gera hjá mér. Og líka gaman. Ég er svo forfallin að ég fæ svona kitl í magann í hvert skipti sem ég sé fyrirsögn á nýrri vísindagrein sem gæti gefið mér vísbendingu um hvað sé að gerast í tilraununum mínum.
Og svo er ég bara að fara að drífa mig í ræktina. Ég er frekar lauslát þessa dagana þegar kemur að líkamsræktarstöðvum. Ég keypti mér kort í NYSC sem gefur mér aðgang að öllum stöðvunum þeirra, sem hefur komið sér vel nú yfir hátíðarnar, því ég hef getað farið út um allan bæ, á stöðvar sem eru með spinningtíma á kvöldin, en kvöldtímunum var frestað á flestum stöðvunum.
Og svo þegar ég er búin í ræktinni ætla ég heim að elda handa okkur Merði og svo beint í partay!