Föstudagur, 19 nóvember, 2004
Vikublogg

Ég held ég ætti bara að stefna á að blogga einu sinni í viku á næstunni, það virðist ekki alveg vera að gera sig að blogga oftar.

Ekki stóð ég við stóru orðin og skrifaði sellupistil síðasta fimmtudag, heldur endaði ég í kajakpartíi niðri í bæ og svo á barnum með stelpunum. Enda hafði ég ekkert að skrfa um eftir að hafa ekki litið upp frá vinnunni í langan tíma... Sveitattan samt, maður á ekki að svíkjast svona um, sama hversu góða afsökun maður hefur.

Um helgina tók ég því svo bara ofur rólega, las vísindagreinar og þreif íbúðina, eldaði mat og keypti inn og svona. Afskaplega húsleg helgi semsagt. Mörður var hinsvegar mest í boltapælingum og að lesa fyrir próf sem hann tók í gær. Við sjáumst lítið þessa dagana þar sem hann er á kvöldin í skólanum og vinnur venjulega frameftir á föstudögum.

Sumsé, allt með kyrrum kjörum á vesturvígstöðvunum....

Posted by erna at 12:09 EH