Þriðjudagur, 2 nóvember, 2004
Ballið byrjað

Úffidúff... fyrstu tölur... Bush 43, Kerry 3... en bara komnar niðurstöður úr þremur til fjórum fylkjum. Og þetta eru náttúrulega líka bara útgönguspár. Þetta verður spennó!

Þetta kosningakerfi hérna er alveg fáránlega flókið og ógegnsætt að mörgu leyti. Ég rak augun í það að Tómas var að velta fyrir sér kjörmannakerfinu. Það sem fólk verður að hafa í huga í sambandi við Bandaríkin er að þau eru BandaRÍKI. Þess vegna er það komið undir hverju fylki hvernig kjörmannareglurnar eru útfærðar. Þannig eru flest fylkin með "winner takes all" kerfi, þar sem sigurvegari kosninganna í fylkinu fær alla kjörmenn fylkisins. Hins vegar eru Nebraska og Main ekki þannig, en ég verð reyndar að játa að ég skil ekki alveg hvernig þau fylki reikna út kjörmannahlutfall forsetaframbjóðenda. Svo er einnig nokkuð athyglisvert að íbúar Colorado greiða einnig í dag atkvæði um það hvort það eigi að breyta aðferðum við kjörmannaval í fylkinu á þann hátt að hvor frambjóðandi fái fjölda kjörmanna í hlutfalli við atkvæðafjölda sem þeir fá í kosningunum. Þetta er svolítið loðið, af því að niðurstöður þessarar kosningar getur haft áhrif á það hversu marga kjörmenn frambjóðendurnir fá frá fylkinu í þessum kosningum.

Þar að auki er kjörmaður ekki bundinn af því að kjósa þann frambjóðanda sem hann hefur svarið eið. Í síðustu kosningum var til dæmis ein kjörkona sem ákvað að sleppa því að kjósa Gore og var atkvæði hennar talið sem "ógreitt atvkæði". Mér skilst að í ár sé einn kjörmaður frá Flórída nú þegar búinn að lýsa því yfir að hann ætli ekki að kjósa Bush þrátt fyrir að hann sé þess eiðsvarinn.

Jæja, ég er farin í þrítugsafmæli, sjáum til hvað gerist í kvöld!

Posted by erna at 07:35 EH
Kjördagur og spennan magnast

Er mætt í vinnuna á þessum heilaga degi lýðræðisins hér í Bandaríkjunum. Prófessorinn minn er hérna líka, en hún er búin að kjósa, og svo er Brasilísk samstarfskona mín mætt. Hinir eru einhvers staðar að kjósa vona ég.

Þau undur og stórmerki gerðust að ég mætti fyrst af öllum í dag. Áður en ykkur svelgist á kaffinu af undrun, þá á þetta sér sínar eðlilegu útskýringar. Í dag er svona hálfgildingsfrídagur, út af kosningunum, og sýnist mér vinnufélagarnir ætla að fara með hann eins og sunnudag; mæta aðeins seinna en á virkum dögum. Og þar að auki var besti dagur ársins síðasta sunnudag, þannig að við græddum heilan klukkutíma. Þannig að þó að ég hafi verið mætt klukkan hálf níu í vinnuna, þá var hún í raun hálf tíu miðað við tímatal síðustu viku...

Repúblikanar virðast vera orðnir ansi örvæntingafullir. Það er ekki gott í þeim hljóðið. Sem dæmi um það, þá hafa þeir hópast saman á kjörstaði til þess að véfengja kosningarétt þeirra sem eru líklegir til þess að kjósa Kerry. Þegar einhver véfengir kosningarétt manns, þá er það starfsfólksins á kjörstað að ákvarða hvort maður fái að kjósa. Oseisei... og ég se, hélt að Dubbja væri að reyna að dreifa lýðræðinu um allan heim.

Posted by erna at 09:18 FH