Mánudagur, 1 nóvember, 2004
Diarios de laboratorieta

Þessi helgi var nokkuð pródúktíf. Ég var í vinnunni mestalla helgina. Á laugardaginn fór ég yfir niðurstöður undanfarinna vikna og fékk heildarmynd á gögnin mín, á meðan ég setti upp eitt stykki Southern blot, og svo í gær las ég hrúgu af vísindagreinum á meðan ég gerði cytospin og hélt áfram með Southern blettunina. Það er komin meiri reiða á hausinn á mér eftir allt þetta grúsk.

Það versta er að vélin sem ég ætlaði að nota í dag er biluð. ABI 7700 rauntíma PCR tækið á þessari stofnun er alltaf að bila og það er nett pirrandi af því að ég næ ekki að vinna það upp um helgina þar sem ég er að fara í kajakferðalag. HMUUUUU......

Annars þá fórum við Mörðurinn á nokkuð góða bíómynd um helgina. Ég mæli með Diarios de motocicleta. Þó ekki væri nema fyrir fallegt landslag og myndarlega karlmenn ;)

Posted by erna at 09:50 FH
Ríkissáttasemjari

Já, það á greinilega að þvinga kennara til þess að samþykkja miðlunartillöguna. Þvílíkt og annað eins! Býst fólk við því að kennarar sætti sig við svona vinnuaðferðir?

Posted by erna at 08:02 FH