Sunnudagur, 31 október, 2004
Besti dagur ársins liðinn

Jáh og hann fór ekki fyrir mikið. Ég var á labbinu í allan dag að klára nokkrar tilraunir, lesa greinar og fór í smá gagnagröft (e. data mining).

Það var víst 21°C í dag. Það var líka glampandi sól og ég naut hennar þó að minnsta kosti þar sem ég sat við skrifborðið mitt og horfði yfir Manhattan. Ég komst ekki út að hlaupa fyrr en upp úr klukkan átta, en grillaðist þá reyndar úr hita. Þrátt fyrir gjóluna.

Þetta er eiginlega í fyrsta skipti sem ég fæ svona almennilegan haustfílíng í ár. Við það að fá svalan vindinn í andlitið og vaða laufin í ökkla á skokkinu fann ég að það er farið að hausta.

Posted by erna at 11:07 EH