Mánudagur, 25 október, 2004
Dúddídú...

Ég ætlaði að vera svo dugleg að klára presentasjónina mína fyrir Journal Club í dag, en svo fór þó ekki.

Það er kona sem ég er að vinna með sem er að gera mig gráhærða. Hún truflaði mig svona milljón sinnum til þess að spurja mig heimskulegra spurninga. Ég er búin að prófa allt, vera með heddfóna til þess að látast ekki heyra í henni, segja henni að ég væri að undirbúa mig fyrir morgundaginn, en allt kom fyrir ekki, ég fékk engan frið. Og svo þurfti ég að fara á fund af því að það kom upp rótavírussýking í músahúsinu okkar og á milli þessa varð ég náttúrulega að vinna. Þ.e. vinna með höndunum, setja upp músahúðfrumurækt.

Og núna er ég þreytt og fúl og nenni engan veginn að búa til fyrirlestur. En ég á víst ekkert val. Svei mér fyrir að nýta tímann ekki betur um helgina.....

Posted by erna at 08:17 EH