Laugardagur, 23 október, 2004
Er laugardagur í dag, ég á mér ekkert líf.....

Æji, hvað ég er óskaplega ómótíveruð og löt núna.

Þessi vika var líka fáránleg. Ég hitti Mörð næstum því ekki neitt af því að hann er í skólanum á kvöldin og var svo í tveimur prófum á fimmtudaginn. Hann varði því auðvitað öllum kvöldum í að lesa. Þar að auki fór móðurborðið í heimilistölvunni okkar á þriðjudaginn, þannig að ég er búin að verja töluverðum tíma í þann pakka, var í símanum við Dell í tvo tíma á þriðjudagskvöldið við að sjúkdómsgreina gripinn og varði svo miklum tíma á eBAY við að finna og bjóða í tölvur með eins móðurborði, þannig að við gætum bara sameinað hana við okkar. Fékk reyndar svipaða tölvu og okkar, á 290 dollara, sem er bara ágætis díll held ég. Vegna bágrar lausafjárstöðu tókst okkur ekki að borga tölvuna á fimmtudaginn, þannig að nýja tölvan kemur ekki fyrr en í næstu viku. Það verður reyndar gaman, því að þá verðum við komin með tölvu sem er með 2.8 GHz örgjörva, tveimur 80GB hörðum diskum, og 1.25GB vinnsluminni =).

Svo asnaðist ég til þess að vera allt of góð í mér í vikunni. Þannig er að ein samstarfskona mín er ólétt og er að fara að verja doktorsritgerðina sína eftir tvær vikur. Yfirmaður okkar hefur þrátt fyrir það ekkert hlíft henni og bað hana til dæmis að halda fyrirlestur á ráðstefnu í NYU í vikunni af því að hún var sjálf ekki í bænum. Grey stelpan er alveg að fara á límingunum af því að hún er að deyja úr morgunógleði og var ofan á allt að flytja í leiguíbúð í vikunni af því að hún var að selja sína íbúð. Þessa stundina er hún í annarri stórborg hér í landi að leita sér að íbúð til þess að kaupa og ofaná allt bað yfirmaður okkar hana um að halda Journal Club fyrirlestur á þriðjudaginn. Og þar sem ég er svo góðhjörtuð, bauðst ég til þess að halda Journal Club fyrir hana. Sem var eiginlega alger bjánaskapur í mér því að efnisvalið verður að vera um þroskunarferli eitilfruma. Það vinna allir á labbinu mínu, nema ég, við rannsóknir á þroskunarferli eitilfruma, á meðan ég vinn að þroskunarferli húðfruma. Þannig að nú þarf ég að gera svo vel að setja mig aftur inn í ónæmisfræði, og helgin fer öll í það. Reyndar er greinin sem ég valdi svo fjandi góð, að það er alger unaður að lesa hana. Best að horfa á björtu hliðarnar.

Svo kom ég einhvern vegin engu í verk á labbinu út af þessu öllu saman. Eða ég ætti kannski að segja að það liggur ekki neitt eftir mig þessa vikuna, nema vinnan frá því í gær. Þetta var bara ein af þessum vikum þar sem ekkert gekk upp. Ég var eiginlega frekar á bömmer yfir þessu á fimmtudaginn. Svo fór ég að hugsa málið og uppgötvaði að ég var eiginlega að ætlast til of mikils af sjálfri mér. Málið er bara að það er allt búið að ganga svo vel undanfarið, að ég var hreinlega búin að gleyma því hvernig það er þegar allt gengur á afturfótunum. Þannig að nú er bara málið að sjúga upp í nefið, bíta á jaxlinn og keyra áfram rannsóknina í næstu viku.

En fyrst þarf ég að halda Journal Club....

Posted by erna at 05:27 EH