Fimmtudagur, 21 október, 2004
Are You Ready for Love?

Vá, ég bara trúi því ekki að ég sé búin að eiga Abbatoir Blues með Nick Cave í þrjár vikur án þess að blogga um diskana.

Ég verð nú bara að segja að ég er ansi impóneruð yfir diskunum. Í fyrstu var ég pínu vonsvikin, af því að mér fannst vanta rokkið og rólið af Nocturama. En nú eru diskarnir búnir að fá slatta mikla hlustun og ég er að fíla þá í strimla. Ég er ánægð með Cave að hafa breytt til tvisvar, fyrst með Nocturama og nú með Abbatoir Blues, en ég varð á sínum tíma fyrir miklum vonbrigðum með No More Shall We Part, þar sem hann var eiginlega eins og endurtekning á The Boatmans Call. Síðastnefndi diskurinn var lengi vel í spilaranum hjá mér, en er nú orðinn ansi úr sér genginn og mér finnst hann eiginlega bara pínu væminn orðinn. Þess vegna var Nocturama kærkomin tilbreyting þegar hann kom út.

Og enn hefur Cave breytt aðeins til og sett inn bakraddir og svona sem eru að virka mjög vel í mörgum laganna, en í öðrum kannski ekki eins vel. Diskurinn er melódískari en nokkur annar Cave diskur sem ég hef heyrt (held ég hafi heyrt þá alla, en er ekki viss). Ég er mest að fíla lögin Let The Bells Ring og svo náttúrulega Get Ready for Love.

Diskarnir eru ekki einu sinni komnir út í Ameríku, en mamma gaf mér þá þegar hún kom í heimsókn. Vinir mínir hér sem eru Cave-arar vissu til dæmis ekki að það væri komin út nýr diskur með honum í Evrópu fyrr en ég sagði þeim það. Ég er þokkalega í skýjunum að hafa fengið forskot á sæluna og notið diskanna í sinni evrópsku útgáfu.

Posted by erna at 09:03 EH
Áfram Einar

Hann Einar Mar á alveg hreint snilldargrein á Sellunni í dag. Ég hafði ekki hugmynd um þennan hæstaréttadóm og er núna rétt í þessu froðufellandi af hneykslun. Ég bara trúi þessu varla. Að manninum hafi talist til refsilækkunar að konan hans hafi reitt hann til reiði. Hver er það sem stjórnar skapi mannsins, hann eða konan hans? Og ef það má beita aðra manneskju ofbeldi ef hún storkar manni, má þá nauðga manneskju sem æsir mann upp? Hvar endar svona?

Og það er náttúrulega huggun harmi gegn að ríkisstjórnin skuli vera svona framsýn í jafnréttismálum að kalla þau gervimál. Það er greinilega allt í góðum höndum þarna heima, ha! Er ekki bara tími kominn á vinstristjórn? Ég held það nú bara.

Posted by erna at 09:08 FH