Föstudagur, 8 október, 2004
Kerryvs. Bush

Kappræður númer tvö eru í gangi núna. Ég verð að segja það, Bush hefur tekið sig saman í andlitinu síðan síðast, hann er mun betri en þá. Hann virðist öruggari og mælskari, reytir meira að segja af sér brandarana og svona...

Kerry höfðar náttúrulega betur til manns en Bush, en það er náttúrulega ekki að marka það.

Það er líka mjög erfitt að trúa því að fóstureyðingar skuli virkilega vera kosningamál í þessu landi árið 2004.

Posted by erna at 10:22 EH