Þriðjudagur, 5 október, 2004
Nóbel

Ég náði ekkert að blogga um það í gær, en einn af líffræðiprófessorunum okkar hér í Kólumbíuháskóla fékk Nóbelsverðlaunin í ár.

Richard Axel og fyrrverandi póstdokkinn hans Linda B. Buck, sem í raun og veru gerði uppgötvunina, fengu Nóbelinn fyrir að uppgötva frumuviðtaka sem ráða lyktarskyni og fyrir að hafa í kjölfar þess verið brautryðjendur í sameindafræðilegum rannsóknum á lyktarskyni.

Það er víst líka alkunna í líffræðinni að hún vann alla þessa vinnu og átti upphaflegu uppgötvunina, hann hafi ekki mikið skipt sér af henni og ekki verið mjög hrifinn af vinnu hennar fyrr en einn daginn þegar hún gekk inn á skrifstofu til hans og sagði honum að hún væri búin að klóna lyktarskynsviðtaka.

Það er líka alkunna að venjulega séu þeir sem fá Nóbelinn ekki þeir sem unnu sjálfa vinnuna á bakvið verðlaunin. Þess vegna er líffræðiheimurinn svo glaður yfir því að Linda fékk verðlaunin með Richard þrátt fyrir að hún hafi "bara" verið póstdokk á þessum tíma.

Posted by erna at 09:52 FH