Föstudagur, 1 október, 2004
Kappræðurnar

Þegar ég kom úr kajaktíma í gærkvöld var verið að endursýna kappræður Kerry og Bush. Auðvitað fannst mér Kerry koma betur út og Bush líta út eins og smákrakki, en gallinn er bara að mörgum Bandaríkjamönnum finnst það vera svo sjarmerandi við Bush. Það er náttúrulega erfitt fyrir Kerry að tala um Íraksstríðið og hryðjuverkastríðið án þess að vera mikið í "Bush-bashing" pakkanum, og þess vegna einmitt held ég að þessar kappræður hafi ekki komið nógu vel út fyrir hann. Fólk var þegar orðið þreytt á Bush-blammeringum hans.

Ég vona bara að hann verði jákvæðari í næstu kappræðum.

Posted by erna at 08:15 FH