Fimmtudagur, 30 september, 2004
Kerry vs. Bush tonight....

Það er hið mesta rangnefni að kalla sameiginlega blaðamannaráðstefnu Kerry og Bush í kvöld kappræður.

Sem dæmi má nefna, þá eiga FOX allar myndavélarnar á staðnum, og frambjóðendurnir fengu allar spurningar í hendurna fyrir fjórum dögum síðan. Það má ekki spurja þá neinna "follow up" spurninga, og þeir mega ekki tala hvor við annan.

Sumsé, varla þess virði að horfa á þá spýta útúr sér þaulæfðum svörum við ritskoðuðum spurningum. Ég held að ég fari frekar bara á kajak.

Posted by erna at 06:55 EH
Miðvikudagur, 29 september, 2004
Eintóm hamingja

Ég er ennþá í vímu eftir spinningtíma gærkvöldsins. Eða kannski voru það bjórarnir tveir sem runnu ofaní háls mér í kveðjuteiti Sigga í gær. Þess vegna er ég búin að vera með aulaglott á andlitinu allt frá því að ég kláraði fyrsta kaffibolla dagsins. Allt er gott og stefnir til hins besta. Prímerarnir mínir virkuðu, sem er frábært, ég er að gera flúrljómunarmótefnalitun á húðsýnunum mínum, sem er ótrúlega gaman. Akkúrat þessa stundina er ég í pásu á meðan præmarí mótefnið mitt er að kitla húðsýnin og er þess vegna að gæða mér á kaffi og súkkulaði. Og það sem betra er, Ensími er á fóninum, nú skal sko kenna vinnufélögunum að hlusta á íslenska gæðatónlist.

Og svo er mamma að koma í heimsókn á föstudaginn. Vííí.

Posted by erna at 03:35 EH
Þriðjudagur, 28 september, 2004
Fellibylsrestar

Jeanne er mætt á svæðið í New York, eða allavegana restarnar af henni. Það rignir eins og hellt sé úr fötu hér í bæ.

Það er svo merkilegt að í svona fæ ég alltaf snert af heimþrá, sem segir kannski meira um veðráttuna á klakanum en nokkuð annað.

Posted by erna at 10:44 FH
Sunnudagur, 26 september, 2004
Urður

Tjáh, ég hefði átt að vita það. Það eru ekki margar konur sem heita Urður. En málið er bara að ég hef ekki séð Urði á Skjöldólfsstöðum síðan hún var átta ára og ég sextán. Ég er búin að lesa dagbækur Bjarna og Unnar í dálítinn tíma en þar sem ég sé Urði bara fyrir mér sem 6-8 ára stelpuhnokka, fannst mér það ekki alveg passa að þetta væri hún! Það fær mig til þess að spá í hvort að Erlín sem Brynja er alltaf að tala um, sé Erlín vinkona hennar Ástu systur.

Posted by erna at 11:19 EH
Fimmtudagur, 23 september, 2004
Sumarið er að verða búið

Það er yndislegur dagur hér á Manhattan. Akkúrat eins og þeir gerast bestir. Lítill raki, tuttugu og eins stigs hiti og sól og blíða. Nú gengur brátt í garð þægilegasti árstíminn, haustið, en fyrst fáum við að njóta dreggja sumarsins í nokkrar vikur áður en það fer að kólna að ráði og trén fara að skipta litum.

Ég fór í morgun og skráði mig á kajaknámskeið í gymminu. Ég hlakka frekar mikið til að læra meira á kajak, þósvo að þetta námskeið sé meira fyrir "white water" kajaktækni heldur en sjókajak, sem er svona meira það sem ég hef áhuga á. Svo er ég líka byrjuð að æfa í New York Sports Club, sem er algert æði. Ég var farin að sakna þess svo að komast í almennilega spinningtíma. Kennararnir í þessum klúbbi eru mjög prófessjónal, ekki bara með læti og hjóla á fullu, heldur eru alltaf að minna mann á að halda góðri líkamsstöðu, ekki skoppa í sætinu, halda öxlunum í sömu hæð, þ.e. láta bara lappirnar hreyfast en ekki efri líkamann, eins og maður sé með vatnsglas á hausnum, og svo er brjáluð keyrsla án þess að alltaf sé verið að taka pásu á milli laga. Akkúrat eins og spinningtímarnir sem mig hefur dreymt um síðan ég bjó í Kaupmannahöfn. Íha! Og svo fær maður tvö til þrjú handklæði til að nota og það er sjampó og hárnæring í sturtuklefanum og rakakrem og hárblásarar við snyrtiaðstöðuna, þannig að allt sem maður þarf að mæta með eru skór, föt og vatnsbrúsi. Og svo fæ ég frían tíma í einkaþjálfun. Algert æði sumsé.

Posted by erna at 10:17 FH
Laugardagur, 18 september, 2004
Firefox

Undanfarin þrjú ár er ég búin að hlaða niður hverri einustu nýrri útgáfu af Mozilla, en alltaf ákveðið að nota hana ekki. Í fyrsta lagi finnst mér Mozilla startast hægar upp og vinna hægar en explorerinn, sem ég gæti nú alveg sætt mig við gegn auknu öryggi við það að nota Mozilla. Hins vegar er öllu hvimleiðara að Movable Type viðmótið kemur illa út í Firefox, það vantar inn hina og þessa möguleika og svo var líka erfitt að skoða hinar og þessar bioinformatik heimasíður með vafranum.

Nú er ég hins vegar að testa nýju útgáfuna og segi barasta "þetta er allt að koma hjá mozilla". Ensembl virkar til dæmis mjög vel. En múvabúl tæp virkar ekki optimalt enn.

Aftur er annað verra mál, að ég kemst ekki inn á Google og get ekki notað neinar leitarvélar á netinu. Þetta er gamalt vandamál, ég held að vélin hafi sýkst af vírus fyrir löngu síðan, og við gátum hlaðið niður Windows updeiti og lagað þetta í Explorer, en ekki Mozilla.... Fúlt.

Posted by erna at 01:45 EH
Miðvikudagur, 15 september, 2004
Eintómt þakklæti

Ég var að lesa um rannsókn sem var gerð á fólki sem heldur dagbækur og þar kom fram að dagbókarskrif hafa jákvæð áhrif á líf fólks, en bara ef maður passar upp á það að skrifa niður það sem maður er þakklátur fyrir (amm, hljómar amrískt, happy ending og allir svaka þakklátir und alles).

Ég ætla því að skrifa niður nokkra hluti sem ég er þakklát fyrir í dag og hefja þar með fyrsta þakklætiskafla þessa bloggs.

Í dag er ég einstaklega þakklát fyrir að vera sameindalíffræðingur sem vinnur bæði með höndunum og hausnum. Sumsé, ég er því fegnust að þurfa ekki að vinna of mikið við tölvur, það myndi gera mig geðveika. Ástæða þess að einmitt í dag er ég þakklát fyrir þessa hluti? Jú, ég er að hamast á uppáhalds heimasíðunum mínum á meðan ég bíð eftir því að fá vefjasýnin mín aftur frá dömunum í vefjasýnadeildinni. Fínt í hófi, en ég er ekkert smá fegin að vera ekki bioinformatikker. Gott að það er til mikið af gáfuðu fólki sem nennir að vera svoleiðis fólk.

Í dag er ég líka einstaklega þakklát fyrir að eiga yndislegan eiginmann, sem er í fríi í skólanum sínum í dag og er heima að gera tiramisu. Gæti það gerst betra?

Posted by erna at 11:40 FH
Mánudagur, 13 september, 2004
Ha? Var einhver að tala um bloggleti?

Þá er komið að því að maður skelli inn svosem eins og einni færslu eða svo.

Ég fór út úr bænum um helgina ásamt öllu liðinu í líffræðideild Kólumbíuháskóla. Annað hvert ár er haldið svokallað "Mini Symposium" þar sem við förum öll á hótel úti í sveit og höldum fyrirlestra fyrir hvert annað og borðum góðan mat, njótum útivistar og síðast en ekki síst, spjöllum saman yfir nokkrum köldum.

Í þetta skiptið var ferðinni heitið í Mohonk Mountain House, sem er um 150 ára gamalt fjallahótel í Shawangunk (borið fram sjongum) fjallgarðinum, rétt fyri sunnan Catskill Mountains í norður New York fylki. Þetta var alveg yndislegur staður. Ég vaknaði á morgnana og horfði beint á sólarupprásina út um gluggann á herberginu okkar, settist svo út á svalir í ruggustól og andaði að mér morgunsvalanum. Það eru líka alveg ótrúlegir skrúðgarðar þarna í kringum húsið og svona limgerðisvölundarhús. Stemmningin minnti algerlega á "The Shining" eftir King. Hótelið er á kletti sem stendur út í Mohonk vatn, og við skelltum okkur í sundsprett í vatninu eftir að hafa farið í göngutúr í svokölluðu Labyrinth, en það er leið sem búin er að merkja í gegnum grjótskriðu upp á hæð nokkra, þar sem við nutum frábærs útsýnis og slöppuðum af eftir um klukkutíma príl.

Það var líka gaman að mæta á fyrirlestrana og sjá hvað allir voru búnir að vera duglegir í verkefnunum sínum síðan á síðasta fundi fyrir tveimur árum síðan. Ég hélt fyrilestur á sunnudaginn og það gekk bara alveg prýðilega.

Það var samt fínt að koma heim aftur, ég er alltaf frekar lúin eftir ráðstefnur, maður sefur lítið, vakir fram á nótt og mætir svo fyrir klukkan átta í morgunmat til þess að komast á fyrstu fyrirlestrana klukkan hálfníu.

Og nú er bara málið að vera dugleg að vinna. Uppáhaldsheimasíðurnar mínar þessa dagana eru Esembl, Entrez og Primer3. Jamm, þeir sameindalíffræðingar sem þetta lesa giska sennilega strax á að ég sé í stórri veiðiferð, eins og við köllum vinnuna sem ég er að gera núna. Ég er nefnilega að fiska eftir genum sem genið mitt gæti virkað á. Ég vona að hann bíti á fljótt, því ég má engan tíma missa ef ég á að útskrifast fyrir fertugt.

Posted by erna at 09:49 EH
Laugardagur, 4 september, 2004
Nýr stuðningsmaður Bush

Thjahérnastabarasta. Er hann Brynjólfur Borgar barasta að lýsa því yfir að hann voni að Bush vinni kosningarnar? Er betra að hafa Repúblikana sem tækifærissinna í djobbinu heldur en Demókrata sem tækifærissinna? Er líka líklegt að Repúblikanar hreinsi upp eftir sig skítinn á næstu fjórum árum frekar en að skíta einfaldlega meira? Mér er spurn..

Posted by erna at 05:09 EH
Föstudagur, 3 september, 2004
Bill Clinton

Ég var rétt í þessu að koma frá annarri byggingu á spítalasvæðinu og sá þá að það var brjálað umferðaröngþveiti í götunni, ekkert nema trukkar frá öllum sjónvarpsstöðvunum og lögreglan að stjórna umferð. Mér brá náttúrulega og spurði öryggisvörðinn hvað var að gerast, og þá var það Clinton greyið, en það var verið að koma með hann á spítalann eftir hjartaáfallið sem hann fékk. Ég hélt náttúrulega að öryggisvörðurinn væri að grínast, þangað til ég sá fréttirnar. En sagan var pínu ýkt, hann er að fara í hjartaskurðaðgerð eftir að hann fékk verk fyrir hjarta í síðustu viku. Grey kallinn að geta ekki farið á spítala án þess að hafa skrúðgöngu á eftir sér.

Posted by erna at 01:47 EH
Miðvikudagur, 1 september, 2004
Endurtekur sagan sig?

Á flokksþingi repúblikana í ágúst 1972 sagði Richard M. Nixon, þáverandi frambjóðandi flokksins til forseta, að ef við eyðum og miklu í varnarmál, töpum við peningum en ef við eyðum of litlu getum við tapað lífinu.

Nixon sigraði kostningarnar, gegn George McGovern frambjóðanda demókrata, með meiri mun en almennt þekkist í forsetakostningum.

Posted by mordur at 12:04 EH