Fimmtudagur, 23 september, 2004
Sumarið er að verða búið

Það er yndislegur dagur hér á Manhattan. Akkúrat eins og þeir gerast bestir. Lítill raki, tuttugu og eins stigs hiti og sól og blíða. Nú gengur brátt í garð þægilegasti árstíminn, haustið, en fyrst fáum við að njóta dreggja sumarsins í nokkrar vikur áður en það fer að kólna að ráði og trén fara að skipta litum.

Ég fór í morgun og skráði mig á kajaknámskeið í gymminu. Ég hlakka frekar mikið til að læra meira á kajak, þósvo að þetta námskeið sé meira fyrir "white water" kajaktækni heldur en sjókajak, sem er svona meira það sem ég hef áhuga á. Svo er ég líka byrjuð að æfa í New York Sports Club, sem er algert æði. Ég var farin að sakna þess svo að komast í almennilega spinningtíma. Kennararnir í þessum klúbbi eru mjög prófessjónal, ekki bara með læti og hjóla á fullu, heldur eru alltaf að minna mann á að halda góðri líkamsstöðu, ekki skoppa í sætinu, halda öxlunum í sömu hæð, þ.e. láta bara lappirnar hreyfast en ekki efri líkamann, eins og maður sé með vatnsglas á hausnum, og svo er brjáluð keyrsla án þess að alltaf sé verið að taka pásu á milli laga. Akkúrat eins og spinningtímarnir sem mig hefur dreymt um síðan ég bjó í Kaupmannahöfn. Íha! Og svo fær maður tvö til þrjú handklæði til að nota og það er sjampó og hárnæring í sturtuklefanum og rakakrem og hárblásarar við snyrtiaðstöðuna, þannig að allt sem maður þarf að mæta með eru skór, föt og vatnsbrúsi. Og svo fæ ég frían tíma í einkaþjálfun. Algert æði sumsé.

Posted by erna at 10:17 FH