Mánudagur, 13 september, 2004
Ha? Var einhver að tala um bloggleti?

Þá er komið að því að maður skelli inn svosem eins og einni færslu eða svo.

Ég fór út úr bænum um helgina ásamt öllu liðinu í líffræðideild Kólumbíuháskóla. Annað hvert ár er haldið svokallað "Mini Symposium" þar sem við förum öll á hótel úti í sveit og höldum fyrirlestra fyrir hvert annað og borðum góðan mat, njótum útivistar og síðast en ekki síst, spjöllum saman yfir nokkrum köldum.

Í þetta skiptið var ferðinni heitið í Mohonk Mountain House, sem er um 150 ára gamalt fjallahótel í Shawangunk (borið fram sjongum) fjallgarðinum, rétt fyri sunnan Catskill Mountains í norður New York fylki. Þetta var alveg yndislegur staður. Ég vaknaði á morgnana og horfði beint á sólarupprásina út um gluggann á herberginu okkar, settist svo út á svalir í ruggustól og andaði að mér morgunsvalanum. Það eru líka alveg ótrúlegir skrúðgarðar þarna í kringum húsið og svona limgerðisvölundarhús. Stemmningin minnti algerlega á "The Shining" eftir King. Hótelið er á kletti sem stendur út í Mohonk vatn, og við skelltum okkur í sundsprett í vatninu eftir að hafa farið í göngutúr í svokölluðu Labyrinth, en það er leið sem búin er að merkja í gegnum grjótskriðu upp á hæð nokkra, þar sem við nutum frábærs útsýnis og slöppuðum af eftir um klukkutíma príl.

Það var líka gaman að mæta á fyrirlestrana og sjá hvað allir voru búnir að vera duglegir í verkefnunum sínum síðan á síðasta fundi fyrir tveimur árum síðan. Ég hélt fyrilestur á sunnudaginn og það gekk bara alveg prýðilega.

Það var samt fínt að koma heim aftur, ég er alltaf frekar lúin eftir ráðstefnur, maður sefur lítið, vakir fram á nótt og mætir svo fyrir klukkan átta í morgunmat til þess að komast á fyrstu fyrirlestrana klukkan hálfníu.

Og nú er bara málið að vera dugleg að vinna. Uppáhaldsheimasíðurnar mínar þessa dagana eru Esembl, Entrez og Primer3. Jamm, þeir sameindalíffræðingar sem þetta lesa giska sennilega strax á að ég sé í stórri veiðiferð, eins og við köllum vinnuna sem ég er að gera núna. Ég er nefnilega að fiska eftir genum sem genið mitt gæti virkað á. Ég vona að hann bíti á fljótt, því ég má engan tíma missa ef ég á að útskrifast fyrir fertugt.

Posted by erna at 09:49 EH