Þriðjudagur, 31 ágúst, 2004
Eigum við að sætta okkur við þetta?

Og nú vilja Bandaríkjamenn að við bætum við "lífkennum" í vegabréfin okkar. Nú hentar það BNA stjórn að hafa fingraför og égveitekkihvað í vegabréfum fólks sem er af erlendu bergi brotið, til þess að þeir geti sagst geta greint á milli vina og óvina í heilagri trúarstyrjöld sinni.

Þeir koma heiminum í uppnám, búa til neyðarástand, og svo eiga allir að hlaupa upp til handa og fóta til þess að þóknast þeim. Beygja sig eftir nýjum reglum sem eru búnar til eftir að neyðarástandi er komið á.

Og auðvitað er Björn Bjarnason ekki lengi að taka það upp. Hann er greinilega mjög hlynntur lífkenna- og lífsýnafasisma hvers konar.

Af hverju þurfa strjórnvöld að lepja allt upp eftir Bandaríkjamönnum? Af hverju er komið svo á Íslandi að stjórnvöld haga sér eins og einvaldar sem þurfa að hafa vit fyrir lýðnum, frekar en fulltrúar í okkar þjónustu?

Posted by erna at 11:17 FH