Mjá, ég er syfjuð.... Og það er rakt í dag. Það er alveg svakalega rakt í dag. Sumarið er loksins komið í New York, en hitinn undanfarna mánuði er búinn að vera algerlega innan marka þess bærilega fyrir litla Íslendinga. Viku eftir viku er hitastigið búið að hanga í kringum tuttuguogsjögráðurnar, með einstaka viku þar sem hitinn hefur dottið niður í tuttugu og þrjár, og meira að segja nokkra daga með aðeins átján stiga hita. Sem er heimskautakuldi á kvarða New Yorkera í júlí.
En ég örvænti ekki, því það hvíslaði að mér lítil fluga að haustið væri væntanlegt eftir mánuð eða svo. Og svo er spáð þrumuveðri í kvöld, þannig að þetta lagast kannski...