Fimmtudagur, 26 ágúst, 2004
All but dissertation

Jæja, þá er ég að byrja fjórða árið mitt í doktorsnámi. Ég er núna orðin ABD, eða "all but dissertation". Það mætti eigin lega taka þetta "but" út úr hugtakinu, því að vinna doktorsverkefnið er náttúrulega þungamiðjan í náminu. Þetta hugtak þýðir að ég sé búin með alla kúrsa og alla kennslu, búin að standa bæði hæfnisprófin (qualifier I og qualifier II), komin með tvær meistaragráður í rassvasann og get því einbeitt mér að sjálfu aðalatriðinu; doktorsverkefninu.

Mér finnst skrýtið að við séum búin að eiga heima hér í þrjú ár og það fjórða sé farið að tifa. Tíminn líður hratt og því kannski best að koma sér að verki.

Posted by erna at 02:43 EH