Váááá... ég held ég hafi endanlega sannað fyrir sjálfri mér núna að ég er ekki morgunmanneskja.
Það var eitthvað vesen á mér í morgun þegar ég var niðri að vinna við frumusortarann, mér fannst alltaf eins og að nærbuxurnar mínar væru að krumpast saman rétt fyrir neðan strenginn og skildi ekkert í fyrirferðinni á þeim. Svo núna rétt áðan fór ég á klósettið og pissaði og tók ekki eftir neinu sérstöku þegar ég girti upp um mig aftur og þvoði mér svo um hendurnar. En arg.. þá voru nærbuxurnar aftur komnar allar í krumpu svo að ég smeygði hendinni niðurfyrir strenginn, og viti menn! Upp komu eitt stykki nærbuxur í viðbót! Ég var semsé búin að gaga um í allan dag með aukanærbuxur ofaní nærbuxunum. Geri aðrir betur.