Miðvikudagur, 4 ágúst, 2004
Jökla

Ég held sko með Jöklu í þessari baráttu. Ég vona að hún flæði yfir þennan stífluskratta og sýni virkjunarmönnum í tvo heimana.

Annars er pínu erfitt að átta sig á þessari frétt. Heldur Moggafólk virkilega að það sé bara ein brú á Jökulsá á Brú? Að minnsta kosti í fréttinni er talað um "brúnna á Jökulsá", sem er alltaf kölluð "á Dal" í fréttunum.

Ég kalla Jöklu bara Jöklu eða Jökulsá á Brú, ég heyrði mjög sjaldan talað um hana sem Jökulsá á Dal sem krakki þegar ég bjó á Jökuldal. Oftast var hún nú bara Jökla, en á Brú þegar meira lá við...

Mig langar til þess að vita við hvaða brú er átt í fréttinni, þó ég geti nú alveg giskað á að þetta sé einhver nýtilgerð brú uppi við stífluframkvæmdirnar. Ég sé það ekki alveg fyrir mér að Jökla flæði yfir bakka sína á Neðra Dal..

Sem minnir mig allt í einu á verkefnið sem ég gerði þegar ég var í áttunda bekk, um sögu brúanna yfir Jöklu. Ég var meira að segja í svæðisútvarpi Austurlands og allt, að tala um verkefnið, og var ekkert smá montin af því.

Posted by erna at 11:24 EH