Laugardagur, 31 júlí, 2004
Maus í hitanum

Ég sit hérna heima í stofu og hlusta á Godspeed eftir þennan líka fína dag. Ég er mesti nörd í heimi og ver laugardagskvöldinu æsispennt í lestur vísindagreina.

Ég svaf framundir hádegi. Nóttinni varði ég í lestur ástarsögu. Hah.. já, þið sem þekkið mig.. þið eruð að lesa rétt. Hún Herdís lánaði mér söguna um hana Korku, og ég átti gæðastund með sjálfri mér, Korku og öðrum persónum og meðleikendum í nótt. Mér veitti ekki af smá afþreyingu eftir átakamikla viku.

Seinnipartinn fór ég svo með vinkonunum í Central Park, en þar voru Vinyl, Maus og Jagúar að spila á Summerstage. Líffræðinemar Kólumbíuháskóla fjölmenntu og svo var allt krökkt af Íslendingum á svæðinu, þannig að það var í nógu að snúast að heilsa upp á þá sem maður þekkti.
Giggið hjá Maus var stórfínt, en mér fannst eiginlega verst að þeir væru ekki með aðra tónleika einhvers staðar í borginni fyrst þeir voru á staðnum. Það var svo heitt að enginn nennti að dansa, þannig að maður var eins og einhver grúppía uppi við sviðið að njóta tónlistarinnar þar sem hljómgæðin voru best. Ég vorkenndi eiginlega öllum strákunum í hljómsveitunum, því það var svo mikill grillhiti og þeir voru í allt, allt, allt of miklum fötum. Dæmigerðir Íslendingar sem er vanir því að geta verið í gallabuxum allt árið....

Það var líka pínu krúttlegt að Melissa vinkona var að virða fyrir sé fólkið og reyna að sjá út hverjir væru Íslendingar. Þegar Einar Freyr kom arkandi framhjá heyrðist í Melissu: "Oh, man, this guy looks totally like he could be Mörður's second cousin. I bet he's Icelandic."

Posted by erna at 11:05 EH
Föstudagur, 30 júlí, 2004
Steikjandi hiti

Tuttugu og níu stiga hiti og sjötíu og tveggja stiga loftraki... Hmmm... ætli ég komist lifandi úr útihlaupinu í kvöld?

Posted by erna at 01:31 EH
Fimmtudagur, 29 júlí, 2004
Dagur adrenalínsins

Það er tómlegt í kotinu í kvöld, Mörðurinn er floginn og ég er eftir hér heima. Ég var þreytt þegar ég kom heim í kvöld eftir viðburðaríkan vinnudag.

Ég hélt labbfund í morgun og hann fór vægast sagt mjög vel, ég fékk það út úr honum sem ég vildi og ég er búin að sannfæra prófessorinn minn um það að mínar tilgátur og kenningar varðandi verkefnið mitt meiki sens, og séu prófanlegar og þess virði að prófa þær. Ekki það að ég gæti ekki haft rangt fyrir mér, en til þess prófar maður náttúrulega tilgátur, til þess að henda þeim í ruslið eða sanna þær.

Svo átti ég líka alveg frábæran fund seinni partinn með Kathryn, þar sem við komum okkur saman um "árásarplan" og ræddum mögulegan tímaramma fyrir birtingu á rannsókninni. Ji, ég er alveg að deyja úr spenningi.

Eftir allt þetta adrenlínflæði var ég bara alveg búin á því þegar heim kom. Ég hvíldi mig aðeins, en réðst svo á uppsafnað uppvask og þvott, gerði fínt og snyrtilegt hérna og horfði svo á ræðuna hans John Kerry á meðan ég hámaði í mig gufusoðið edamame. Ég verð nú að segja það að hann er ansi forsetalegur þessi elska. En miki svakalega fer öll þessi ameríska þjóðremba í taugarnar á mér. Úffa. En hann sagðist þó að minnsta kosti vilja auka fjármagn til líffræðirannsókna og að hann væri hlynntur rannsóknum á stofnfrumum, svo að ég held að ég sé bara sátt við hann.

Posted by erna at 11:11 EH
Miðvikudagur, 28 júlí, 2004
Af húfum, framtíðarplönum og bónuspokum

Jamm og já. Ég var að klára síðustu skyggnuna fyrir labbfundinn á morgun, enda er komin hefð á það að gera ekki "Future directions" skyggnuna fyrr en seint á aðfangakvöldi labbfundar.

Mörðurinn er að pakka niður í töskur. Mér skilst að hann verði upptekinn næstu daga, heima á Íslandi, við að þvo þvott, en það var fátt hreint til í kotinu til að læða ofaní töskugarminn. Við vorum líka að ræða það hvort að hann þyrfti að taka með sér húfu eða ekki. Mín sagði já, hans sagði nei. Hvað haldið þið?

Einnig get ég glatt landsmenn með því að Bónus innkaupapokarnir sem rötuðu til okkar með tígurynjunni fá far aftur heim á morgun með karlinum.

Posted by erna at 11:29 EH
Mánudagur, 26 júlí, 2004
Bjúrejókrasí og Eiki

Dagurinn í dag var mjög ópródúktívur, svo ekki sé annað sagt. Ég þurfti að fara með pappírana mína til alþjóðaskrifstofunnar og fara svo með pappíra sem þær létu mig fá til launaskrifstofu líffræðideildarinnar. Svo þurfti ég að fara með kvittanir og fylla út eyðublöð til þess að fá endurgreitt fyrir ráðstefnuna sem ég fór á í apríl (mjamm, ég er alltaf uppfrá á skrifstofutíma, þess vegna beið ég með að gera þetta þangað til að ég þyrfti að gera fleiri hluti í leiðinni.)

Kólumbíuháskóli ákvað í fyrra að ofborga mér laun og þess vegna er verið að vanborga mér laun í staðinn þessa dagana til þess að jafna það út. Vegna þess að ég treysti ekki apparati sem þarf að starfrækja heila "overpayment department" til þess að hætta að borga mér of lítið þegar þeir eiga að gera það, ákvað ég að fara að sækja launaseðlana mína í leiðinni. En allt kom fyrir ekki. Þeir fundust hvergi, ég var búin að fara milljón hringi niður til þess að fá lykil að enn einum nýjum póstkassa, en það voru engir launaseðlar til mín neins staðar. Þannig að ég var send í hringi á milli skrifstofa sem áttu að geta prentað bleðlana út fyrir mig, þangað til ég fékk símanúmer hjá yfirbókaraskrifstofu Kólumbíuháskóla. Þau eru svo næs þar að þau ætla að prenta þetta út fyrir mig og láta mig vita eftir TVO DAGA þegar þau verða búin að því. Eins gott að heimaprentarinn minn er ekki svona hægvirkur!

Svo fór ég í vinnuna og pjéséerraði smá og þvoði geislavirkni af suðurblettuninni minni og kíkti á mýsnar mínar og ákvað að fara svo bara heim.

Mörður er hins vegar búinn að vera í alla dag með henni Dísu Tæger að leita að Víkingnum honum Eika, en það er efni í hennar blogg.

Posted by erna at 06:26 EH
Fimmtudagur, 22 júlí, 2004
Vísindadagur

Ég var að koma af frááááábærum fundi með proffanum mínum. Framundan eru frábærlega skemmtilega tilraunir, júhú. Ég elska vísindin.

Posted by erna at 03:58 EH
Icefeast

Það stendur mikið til um helgina. Við Mörður ætlum að halda matarboð fyrir nokkra af vinum okkar, einskonar landkynningarmatarboð. Boðið hefur hlotið nafnið Icefeast.

Við verðum samtals 9 í mat og við erum búin að setja saman girnilegan matseðil. Í forrétt verða rússneskar pönnukökur, s.k. blini's með sýrðum rjóma og íslenskri síld, reyktum íslenskum silungi og íslenskum kavíar. Við munum kannski líka bjóða upp á einhvers konar steiktan silung í forrétt, en það fer eftir utanaðkomandi aðstæðum. Í aðalrétt ætlum við að hafa lambalæri, en ég keypti tvö svoleiðis í Fríhöfninni í maí. Mörður er búinn að fá gómsæta upprkrift að lambalæri hjá tengdapabba, og lærin eru komin niður í ískáp úr frystinum og eru að þiðna þar. Með lambalærunum ætlum við að hafa bakaðar kartöflur og fetaostasalat. Verst að eiga ekki súrsað rauðkál. Í eftirrétt ætla ég svo að gera hinn klassíska sjérrífrómas.

Hugaðir gestir fá svo að skola kæstum hákarli niður með brennivíni eftir matinn.

Ég minntist á utanaðkomandi aðstæður fyrr í færslunni. Málið er að við eigum hvorki reyktan eða ferskan silung í kotinu. Hins vegar frétti ég af tengdamömmu á Þingvöllum fyrr í vikunni, þar sem hún keypti nokkra urriða handa okkur. Þeir munu nú vera á leiðinni til okkar með Fed Ex ásamt reyktum frænda sínum. Það fer eftir þefvísi bandarískra tollayfirvalda hvort við munum fá fiskana í hendur okkar fyrir helgi.

Haldiðið ekki að það sé fyrirhöfn!

Posted by erna at 01:57 EH
Miðvikudagur, 21 júlí, 2004
...sem er kona...

það breytir náttúrulega öllu að hún skuli vera kona. Ég er líka alveg hissa á því að það hafi ekki verið tekið fram hversu mörg börn hún ætti.

Ég skora á Moggann að taka það fram næst þegar karlmaður lendir í árekstri eða verður fyrir umferðaróhappi að taka það fram að bílstjóri/flugmaður hafi verið karlkyns.

Posted by erna at 08:09 FH
Þriðjudagur, 20 júlí, 2004
Hlaupasumar

Það er ekki mjög mikið að frétta af okkur þessa dagana. Lífið bara rúllar sinn vanagang og sumarið er í algleymingi.

Ég er búin að vera óvenjudugleg að hlaupa undanfarið. Ég nefnilega uppgötvaði að það er alveg fullkomið að hlaupa í Riverside Park í ljósaskiptunum. Þá er hitinn aðeins farinn að dala og jafnvel rakinn líka. Nú er svo komið að mér finnst bara þægilegt að hlaupa í 27 gráðum á selsíuskvarða og sjötíu prósent raka. En ef það hitnar mikið meira en það myndi ég taka kajakróður á kaldri Hudson ánni fram yfir útihlaup.

Garðurinn er með skemmtilegasta móti í ljósaskiptunum að sumarlagi. Fyrsti hluti leiðarinnar sem ég hleyp liggur í gegnum trjáþykkni, og á þessum tíma dags hleyp ég í gegnum haf blikkandi eldfluga. Ég verð líka oft vör við hina grimmu þvottabirni á kvöldin og hef oftar en ekki séð þá elta íkorna upp í tré með græðgissvip á fésinu.

Í gær var annarleg stemning í skóginuum. Það var greinilega einhver að slappa af með "einni feitri" einhvers staðar neðarlega í garðinum og hasslyktina lagði í gegnum trjáþykknið. Svo þegar ég kom niður að Hudson, hljóp ég í takt við þéttan slátt bongótromma, en á mánudagskvöldum er iðullega kennslustund í trommuslætti á þeim slóðum þar sem hópur nemenda spreytir sig á afrótrommum.

Það má því segja að þetta útihlaup hafi verið ákveðið "mjúltítask" þar sem maður hliðarreykti hass og naut amerískrar Afríkumenningar í takt við hraðan hjartsláttinn og (ekki svo mjög) skjót fótspor.

Posted by erna at 10:05 FH
Heimskir fyrirburar

Ætli ég væri löngu orðin doktor ef ég væri ekki fyrirburi? Eh.. kannski er ekki hægt að extrapólera svona....

Posted by erna at 08:37 FH
Laugardagur, 17 júlí, 2004
Hæ, ég er á lífi

Það er greinilegt að ég skora hátt á aumingjabloggaralistanum þessa dagana. Ég bara hef ekki fundið mikla þörf fyrir að segja frá því sem á daga mína hefur drifið. Hér er sumarið í algleymingi, þó að fólk hafi kvartað mikið yfir nokkrum rigningardögum í síðustu viku. Lífið er bara ljúft.

Ég er á ákveðnum krossgötum í verkefninu mínu og ætla því að nota daginn í dag til þess að lesa og láta hugann reika um heima dermatólógíunnar á meðan ég þvæ þvott og sinni almennum viðhaldsstörfum hins daglega lífs.

Posted by erna at 05:30 EH
The Station Agent

Ég horfði á The Station Agent í gær. Fjórar af fjórum mögulegum.

Posted by mordur at 07:09 FH
Þriðjudagur, 6 júlí, 2004
Dabbi kóngur með Bush á C-SPAN

Herra Oddsson er á C-SPAN að kyssa rassinn á Bush. Hann blaðraði eitthvað svakalega um það hversu vel máli farinn Bush væri (ég hef aldrei heyrt nokkurn mann segja það áður) og svo tók hann undir það með Bush að heimurinn væri miklu öruggari eftir að ráðist var inn í Írak.

Ég væri ekkert svekkt þótt herinn færi með öllu sínu hafurtaski. En mikið væri gott að losna líka við hann Davíð Oddsson, maður er kominn með alveg nógu stóran skammt af honum þó að hann blasi ekki við á skjánum þegar maður kveikir á sjónvarpinu hjá sér hér í Ameríkunni.

Posted by erna at 09:16 EH
Íslandsmet í ósvífni og Barbabrellur

Húrra

Posted by mordur at 10:34 FH
Sunnudagur, 4 júlí, 2004
Sími

Já, kannski best að láta fólk vita. Við erum búin að loka heimasímanum okkar. Þannig að nú eru það bara gemsarnir sem blíva. Við vorum eiginlega alveg hætt að nota heimasímann og hann kostaði einfaldlega of mikið í rekstri.

Posted by erna at 08:53 FH
Laugardagur, 3 júlí, 2004
Farenheit

Ég er á leiðinni niður að bátabryggju, þar sem ég ætla að verja fyrri hluta dags.

Við fórum á bíó í gær, á áróðursmyndina Farenheit 9/11. Hún var ágæt, ekkert meistarastykki svosem. Michael Moore er fyndinn, tekur þetta á húmornum, en það kom ekkert nýtt fram, ekkert sem maður hefur ekki heyrt áður. Og það er náttúrulega alveg svakalega greinilegt af myndinni hvað hann er hlutdrægur og hefur frammi einhliða málflutning. En það er það sem ég bjóst við hvort sem er, þetta er mynd eftir celebið Michael Moore, ætluð til þess að vekja viðbrögð. Ég varð samt einhvern veginn fyrir pínu vonbrigðum, því að ég var að vonast eftir því að hann kæmi með eitthvað nýtt, eða að minnsta kosti nýjan vinkil til þess að sjá hlutina frá.

En alla vegana, úti er dásamlegt veður, tuttugu og þrjár gráður og unaður og kominn tími til að smakka Hudson aftur.

Posted by erna at 09:58 FH
Fimmtudagur, 1 júlí, 2004
Það er saltbragð af Hudson

Jæja, nú er ég búin að smakka Hudson ána, og hún er sölt. Það kom reyndar ekkert á óvart. Ég er líka öll marin og blá eftir ævintýrið, það er ekki átakalaust að skríða upp í kajak, sérstaklega ef maður er í björgunarvesti sem er of stórt á mann og kajakinn manns við það að sökkva.

En þetta var stuð, stuð, stuð.

Posted by erna at 02:26 EH