Ég sit hérna heima í stofu og hlusta á Godspeed eftir þennan líka fína dag. Ég er mesti nörd í heimi og ver laugardagskvöldinu æsispennt í lestur vísindagreina.
Ég svaf framundir hádegi. Nóttinni varði ég í lestur ástarsögu. Hah.. já, þið sem þekkið mig.. þið eruð að lesa rétt. Hún Herdís lánaði mér söguna um hana Korku, og ég átti gæðastund með sjálfri mér, Korku og öðrum persónum og meðleikendum í nótt. Mér veitti ekki af smá afþreyingu eftir átakamikla viku.
Seinnipartinn fór ég svo með vinkonunum í Central Park, en þar voru Vinyl, Maus og Jagúar að spila á Summerstage. Líffræðinemar Kólumbíuháskóla fjölmenntu og svo var allt krökkt af Íslendingum á svæðinu, þannig að það var í nógu að snúast að heilsa upp á þá sem maður þekkti.
Giggið hjá Maus var stórfínt, en mér fannst eiginlega verst að þeir væru ekki með aðra tónleika einhvers staðar í borginni fyrst þeir voru á staðnum. Það var svo heitt að enginn nennti að dansa, þannig að maður var eins og einhver grúppía uppi við sviðið að njóta tónlistarinnar þar sem hljómgæðin voru best. Ég vorkenndi eiginlega öllum strákunum í hljómsveitunum, því það var svo mikill grillhiti og þeir voru í allt, allt, allt of miklum fötum. Dæmigerðir Íslendingar sem er vanir því að geta verið í gallabuxum allt árið....
Það var líka pínu krúttlegt að Melissa vinkona var að virða fyrir sé fólkið og reyna að sjá út hverjir væru Íslendingar. Þegar Einar Freyr kom arkandi framhjá heyrðist í Melissu: "Oh, man, this guy looks totally like he could be Mörður's second cousin. I bet he's Icelandic."