Fimmtudagur, 29 júlí, 2004
Dagur adrenalínsins

Það er tómlegt í kotinu í kvöld, Mörðurinn er floginn og ég er eftir hér heima. Ég var þreytt þegar ég kom heim í kvöld eftir viðburðaríkan vinnudag.

Ég hélt labbfund í morgun og hann fór vægast sagt mjög vel, ég fékk það út úr honum sem ég vildi og ég er búin að sannfæra prófessorinn minn um það að mínar tilgátur og kenningar varðandi verkefnið mitt meiki sens, og séu prófanlegar og þess virði að prófa þær. Ekki það að ég gæti ekki haft rangt fyrir mér, en til þess prófar maður náttúrulega tilgátur, til þess að henda þeim í ruslið eða sanna þær.

Svo átti ég líka alveg frábæran fund seinni partinn með Kathryn, þar sem við komum okkur saman um "árásarplan" og ræddum mögulegan tímaramma fyrir birtingu á rannsókninni. Ji, ég er alveg að deyja úr spenningi.

Eftir allt þetta adrenlínflæði var ég bara alveg búin á því þegar heim kom. Ég hvíldi mig aðeins, en réðst svo á uppsafnað uppvask og þvott, gerði fínt og snyrtilegt hérna og horfði svo á ræðuna hans John Kerry á meðan ég hámaði í mig gufusoðið edamame. Ég verð nú að segja það að hann er ansi forsetalegur þessi elska. En miki svakalega fer öll þessi ameríska þjóðremba í taugarnar á mér. Úffa. En hann sagðist þó að minnsta kosti vilja auka fjármagn til líffræðirannsókna og að hann væri hlynntur rannsóknum á stofnfrumum, svo að ég held að ég sé bara sátt við hann.

Posted by erna at 11:11 EH