Dagurinn í dag var mjög ópródúktívur, svo ekki sé annað sagt. Ég þurfti að fara með pappírana mína til alþjóðaskrifstofunnar og fara svo með pappíra sem þær létu mig fá til launaskrifstofu líffræðideildarinnar. Svo þurfti ég að fara með kvittanir og fylla út eyðublöð til þess að fá endurgreitt fyrir ráðstefnuna sem ég fór á í apríl (mjamm, ég er alltaf uppfrá á skrifstofutíma, þess vegna beið ég með að gera þetta þangað til að ég þyrfti að gera fleiri hluti í leiðinni.)
Kólumbíuháskóli ákvað í fyrra að ofborga mér laun og þess vegna er verið að vanborga mér laun í staðinn þessa dagana til þess að jafna það út. Vegna þess að ég treysti ekki apparati sem þarf að starfrækja heila "overpayment department" til þess að hætta að borga mér of lítið þegar þeir eiga að gera það, ákvað ég að fara að sækja launaseðlana mína í leiðinni. En allt kom fyrir ekki. Þeir fundust hvergi, ég var búin að fara milljón hringi niður til þess að fá lykil að enn einum nýjum póstkassa, en það voru engir launaseðlar til mín neins staðar. Þannig að ég var send í hringi á milli skrifstofa sem áttu að geta prentað bleðlana út fyrir mig, þangað til ég fékk símanúmer hjá yfirbókaraskrifstofu Kólumbíuháskóla. Þau eru svo næs þar að þau ætla að prenta þetta út fyrir mig og láta mig vita eftir TVO DAGA þegar þau verða búin að því. Eins gott að heimaprentarinn minn er ekki svona hægvirkur!
Svo fór ég í vinnuna og pjéséerraði smá og þvoði geislavirkni af suðurblettuninni minni og kíkti á mýsnar mínar og ákvað að fara svo bara heim.
Mörður er hins vegar búinn að vera í alla dag með henni Dísu Tæger að leita að Víkingnum honum Eika, en það er efni í hennar blogg.