Miðvikudagur, 30 júní, 2004
Allt að sjatna

Er rönkuð við mér úr næturrotinu og er að láta hafragrautinn sjatna í maga mér á meðan ég blogga. Eftir fimm mínútur ætla ég svo að þjóta af stað á hjólinu mínu trygga og góða, sem leið liggur upp að 168 stræti og sjá hvort að mér takist ekki að vinna smá í dag.

Í dag verður svona dæmigerður næn tú fæf dagur, þar sem ég er að fara í kajaktíma lengst suður í bæ klukkan sex. Þar ætla ég að læra "wet exit" og "assisted rescue". Það ku víst vera best að læra losun úr kajak í lygnri sundlaug, en það verður að bíða betri tíma. Fyrstu losunaræfingarnar verða framkvæmdar á Hudson í kvöld. Ég vona bara að ég verði ekki bitin af fiski eða marfló í nefið þar sem ég verð staðsett á hvolfi í kajak að reyna að ná áttum =)

Posted by erna at 08:27 FH