Þriðjudagur, 29 júní, 2004
Jæjahh

Dagurinn í dag er búinn að vera ansi pródúktífur. Ég er búin að vera á fullu síðan klukkan hálftíu og bara búin að koma ansi hreint mörgu í verk. Og nú hangsa ég bara og bíð eftir að mega setja DNA á gel, en það verður til eftir tíu mínútur og því smá stundi milli stríða til að blogga.

Ég ætla svo að drífa mig heim að gelhlaðningu lokinni og spretta úr spori niðri í Riverside Park. Jafnvel fara lengri hringinn ef sá gállinn verður á mér. Þetta er ansi ljúft sko, að getað farið hálfnakin út að hlaupa, annað en í kuldanum í vetur.

Posted by erna at 06:56 EH