Ég stend í ströngu við að elda miðsumarsrísottó handa okkur Adelene. Mörður er úti í New Jersey einhversstaðar í fótboltaerindum og því er ég ein í kotinu, en Adelene á leiðinni til mín. Við ætlum að snæða saman og fara svo í teiti sem vinur okkar úr gönguklúbbnum heldur í kvöld.
Ég fór niður að bátabryggju í dag til að hljálpa til og kajakaði smá, fór með bát upp nokkrar blokkir, en á morgun er New York Þríþrautin margfræga og fólk frá Bátahúsinu ætlar að vera með stuðning við sundfólkið. Við stöllurnar ætlum því að vakna klukkan fjögur í fyrramálið og drífa okkur niður að bryggjunni á sjötugasta og níunda stræti og róa út á á, þar sem við verðum til halds og trausts til klukkan tíu um morguninn, þegar síðasta sundfólkið verður komið leiðar sinnar. Þetta starf felst mest í því að vísa fólki rétta leið, og svo ef einhver gefst upp verðum við að draga viðkomandi í land....