Fimmtudagur, 24 júní, 2004
Bólur

Æji, ég er eitthvað að bauka hér við að reyna að púsla saman páverpojnt til þess að sýna Proffanum mínum á eftir. Ég bara er ekki alveg að nenna því, mig langar meira til þess að verja tímanum í að gera TUNEL assay og Western Blot, ég er ekki alveg týpan til þess að vinna mikið fyrir framan tölvur.

Ég er eiginlega alveg að krepera á þessu. En á móti kemur að ég fæ skemmtilegar frumur sendar frá Þýskalandi í næstu viku. Svokallaðar fiturkirtlafrumur. Hverjum hefði dottið í hug að ég ætti eftir að velta fyrir mér fræðilegum forsendum unglingabólna í náminu?

Eftir tvö ár mun heimurinn þakka mér, því ég verð búin að lækna unglinga- (og fullorðins-) bólur. Neh, ég segi nú bara svona...

Posted by erna at 12:30 EH