Ég er búin að sitja hérna inni í stofu í klukkutíma og horfa á Food Network. Þegar ég horfi á kokkana þar elda hverja girnilegu máltíðina á eftir annarri langar mig bara til þess að eiga stórt hús með heimilislegu eldhúsi þar sem ég gæti varið öllum helgum í að elda fyrir ómótstæðileg matarboð fyrir vini og fjölskyldu.
Ef ég gefst einhvern tíman upp á vísindunum ætla ég að verða kokkur....