Lífið er bara ljúft þessa dagana. Sumar og sól upp á hvern dag og ævintýri hversdagsins eru eftir því. Við fórum með labbinu mínu í gær á tælenskan veitingastað í Jackson Heights, þar sem við sátum úti í bakgarði og spjölluðum og nutum undursamlegrar eldamennsku. Chai segir að hann fái heimþrá af því að borða þarna, svo ekta tælenskur sé maturinn. Þetta var líka besti tælenski matur sem ég hef smakkað.
Ég var svo núna rétt í þessu að koma heim af kayaknámskeiði, en ég naut veðurblíðunnar og hjólaði sem leið lá meðfram Hudson ánni alla leiðina úr vinnunni niður að DTBH, en það eru um tólf mílur, sem gerir tuttugu kílómetra. Þar niðrifrá var kennslustund í staðháttum á Hudson ánni og nágrenni, farið í gegnum sjávarföll og strauma, en Hudson áin er mjög sérstök að því leiti að í henni gætir sjávarfalla margar mílur inni í landi.
Hér er mynd frá námskeiðinu:

Það var óttalega næs að sitja í kvöldsólinni og hlusta á fyrirlesturinn og bara slappa af. Nú er bara málið að fá sér almanak og fara að fylgjast með flóði og fjöru!