Mánudagur, 14 júní, 2004
Ökufantar

Haldið þið ekki bara að vísindamenn séu búnir að komast að því að lausnin við umferðarteppum í stórborgum sé að fólk aki eins og fantar. Þannig gætum við kannski sparað allar þessar milljónir sem fara í mislæg gatnamót og færslu umferðaræða hægri og vinstri. Bara að kenna fólki að keyra nógu glannalega. Það virkar að minnsta kosti í Bogotá.

Posted by erna at 01:33 EH