Sunnudagur, 13 júní, 2004
Góð helgi

Þá er enn ein helgin senn á enda. Stórfín að vanda. Við vorum ofurlítið slöpp í gær eftir skemmtilegt bjórkvöld og fórum seinni partinn með teppi út í Riverside Park og lágum og slöppuðum af og lásum. Ég æfði mig líka pínulítið á línuskautum, æfði T-stoppið aðeins í smá brekku, og fór nokkrar ferðir eftir endilöngum garðinum.

Svo kíkti Siggi í mat til okkar í gærkvöld, í Ýsu-Elegant a' la Rúnar Marvinsson og sjérrífrómas, ásamt tilheyrandi guðaveigum. Það var ferlega fínt að sitja bara fram eftir og spjalla og hafa það gott.

Í dag fór ég svo aftur niður í DTBH og hjálpaði fólki út í kayaka og kynntist fullt af nýju fólki og naut veðurblíðunnar, áður en ég hjólaði í vinnuna að gefa frumunum mínum að borða. Mörður fór hins vegar á pitsustað niður í bæ að horfa á England-Frakkland í sjónvarpinu.

Og nú vorum við að enda við að kynngja síðustu munnbitunum af afgangs ýsu og frómas, Mörður er að horfa á körfubolta og ég, eins og oft áður, er að reyna að mennta mig aðeins um virkni húðarinnar.

ps. Ég er aftur komin með alveg klikkaða sjóriðu...

Posted by erna at 09:03 EH