Föstudagur, 11 júní, 2004
Busl og bjór

Vá, mín var ekkert smá dugleg og fór á fætur klukkan hálfátta í dag. Það er líka góð ástæða að baki. Ég þarf að vera komin niður að Downtown Boathouse klukkan hálfsex, þannig að ég þarf að vera búin að vinna helst klukkan hálffimm. Þannig að í dag var annað hvort að duga eða drepast, mæta snemma eða að missa af kajakferð á Hudson ánni.

Svo er stefnt á barkvöld Íslendinga á Telephone Bar, eftir buslið. Vonandi að maður verði ekki eins og hundur dreginn af sundi, því ég kemst ekki heim á milli....

Posted by erna at 08:26 FH