Fimmtudagur, 10 júní, 2004
Spennan í hámarki

Í dag er góður dagur í vísindunum, allavegana mínum vísindum. Það er svo ótrúlegt með líffræðina, hvað hún er svakalega óútreiknanleg. Ég byrjaði á verkefninu mínu og bjóst við að annað hvort myndi X, Y eða Z gerast, eða kannski bara ekki neitt og að ég myndi þurfa að byrja upp á nýtt. Og haldið þið þá ekki að það hafi bara verið Æ sem gerðist. Algerlega óvænt.

Það er ekkert sem jafnast á við að fá óvænta niðurstöðu og finna hjartað taka kipp og blóðið streyma á milljón mílum á klukkustund, finna heilann næstumþví umpólast af undrun. Það er búið að vera svolítið af því þessa dagana. Spennó, spennó, spennó!

Posted by erna at 03:22 EH